Rjómaspínatpestó! Þessi var æðislega góður, algjört tilraunaverkefni hjá mér og heppnaðist líka svona vel, svo vel að ég er hvergi nærri hætt að nota pestó saman við rjóman í fleirri útfærslum!
Chilli Bolognese Var með spagetti og heimagerðar hakkabollum í Chili Bolognese sósu frá Toro um daginn. Máltíð sem hentaði mér vel i tvo daga. Sósurnar eru að koma mér skemmtilega á óvart og eru virkilega bragðgóðar.
Toro Pizza partý 1 pakki af Toro ítölsku pizza blöndunni kom mér verulega á óvart, svakalega einfalt en aðeins þurfti að bæta saman við vatni og olíu og það sem meira er að þetta dugði í heilan helling af allsskonar sem ég bjó mér til.
Carbonara tagliatelle pasta Einstaklega góður réttur og auðveldari en maður heldur að búa hann til. Ég mun gera þennan aftur fljótlega og prufa þá annarsskonar pasta/spagettí og jafnvel annað hráefni eins og skinku, risarækjur eða kjúkling.
Pizza með heitreyktum lax Hagsýna húsmóðirin nýtir allt vel og oftar en ekki þá nýti ég allt upp til agna. Ég útbjó mér Baguette með heitreyktum laxi og daginn eftir þá var pizza sem ég deili nú hérna með ykkur.
Fylltur pastaréttur Ég er ósjaldan að reyna að hafa tilbreytingu í matarvali mínum og svo hef ég líka svo gaman af því að prufa nýtt. Hérna ákvað ég að fylla þetta stóra pasta af hakkrétti og setja svo inn í ofn og ost yfir.
Kartöflupizza! Hefði ég pantað mér hana, nei en eftir að hafa smakkað eðal súrdeigs Kartöflupizzu hjá henni Ídu sem rak Kaffi Klöru í fyrra, þá klárlega. Nú ekki á ég hæg heimatökin á Ólafsfjörðinn,,,
Pylsupasta Pasta og pylsur í ljúffengri pasta sósu er einn af þeim allra einföldustu réttum sem finna má og aðeins 3 hráefni í honum plús Parmesan osturinn ofan á fyrir
Kjúklinga lagsagna Þetta er í mitt fyrsta sinn sem ég elda kjúklinga lasagna og klárlega ekki í mitt síðasta. Ég ákvaða að fara alveg eftir uppskriftinni að þessu sinni en ég mun
Taco flétta Þessa skemmtilegu uppskrift deildi hún Eybjörg Dóra með okkur inni á Brauðtertur & heitir réttir á feisbók. Skemmtileg tilbreyting og mjög góð.
Pizzahátíðarlengjan! Þessa snilldarinnar uppskrift fékk ég senda frá henni Dísu vinkonu minni og fær hún toppeinkunn en við Guðrún vinkona gerðum hana saman og vorum sammála