Toro réttur með nýrnabaunum!

March 16, 2025

Toro réttur með nýrnabaunum!

Toro réttur með nýrnabaunum!
Áfram heldur einfaldleikinn svona inn á milli, Toro mix og nýrnabaunir sem var einstaklega ljúffengur réttur fyrir þá sem eru hrifnir af hversskonar baunum. Hægt er að nota flestar tegundir bauna í hann þennan og má þá nefna t.d. Nýrnabaunir, Svartar baunir, kjúklingabaunir og Smjörbaunir.

1 pk af Italiensk Gryte með spagetti og tómat
1 dós af rauðum nýrnabaunum
4-6 kirsjuberjatómata

Baunir eru einstaklega próteinríkar og fullar af vítamínum og trefjum en trefjar eru eitt af því sem mörgum vantar.


Bætið saman við pakkann 8 dl af vatni og hitið upp, látið svo nýrnabaunirnar saman við og látið malla í ca 20 mínútur eða þar til pastað er orðið mjúkt, skellið kirsjuberjatómötunum saman við líka.

Ég var með smábrauð með sem ég kryddaði með hvítlauksdufti frá Mabrúka og svo skreytti ég með smá basilíku.

Hvítlauksduftið er alveg dásamlega ferskt og gott, þið finnið það um leið og þið opnið pakkann.

Nú daginn eftir þá nýtti ég afganginn á annan máta.


Ég setti afganginn í eldfast mót

Bjó til smá holu í miðjuna og stráði osti allan hringinn

Og setti svo eitt egg í miðjuna og setti inn í ofn í um 15-20 mínútur

Ég kryddaði réttinn með Shakshuka kryddblöndunni frá Mabrúka sem gaf honum þetta extra góða og smá spæsí

Meiriháttar góður réttur eins og sá fyrri.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Pasta & pizzur

Grænmetis pizza!
Grænmetis pizza!

March 07, 2025

Grænmetis pizza!
Þetta þarf ekkert að vera flókið því ef maður er enginn snillingur í að útbúa súrdeigspizzadeig þá fer maður bara og kaupir það tilbúið. Í þetta sinn þá fór ég á Flatey pizza og keypti mér tilbúið deig og tók með heim. Fékk létta kennslu í hvernig best væri að fletja það út, svona með höndunum og var bent á að það væri betra fyrir byrjendur að hafa deigið kalt. 

Halda áfram að lesa

Pizzahringur!
Pizzahringur!

February 06, 2025

Pizzahringur!
Hátíðlegur snúningur fyrir jólin að skella í eins og einn eða tvo pizzahringi. Hérna er ég með tómata, ferskar mozzarella kúlur og basilíku en einfalt er að setja á hringinn það sem ykkur langar til.

Halda áfram að lesa

Tariello pastaréttur!
Tariello pastaréttur!

December 13, 2024

Tariello pastaréttur
Tariello pasta og Nduja sterk krydduð er mjúkt kryddað svínakjöts mauk, með chili frá Calabriu á Ítalíu sem ég blandaði svo saman við rjóma og Ricotta e Noci pesto ásamt sveppum og blaðlauk, einstaklega einfaldur en gómsætur pastaréttur sem bragð er af.

Halda áfram að lesa