Rjómapasta með Risarækjum!

November 23, 2024

Rjómapasta með Risarækjum!

Rjómapasta með Risarækjum!
Einstaklega ljúffengur pastaréttur sem ég smellti í eitt kvöldið og nýtti bæði það sem ég átti til og sló í gegn hjá sjálfri mér í leiðinni því þessi réttur dugði mér í 3 máltíðir og var alltaf jafn góður, trúið mér!


Linguine nr.13 pasta (skammtur fyrir 2)
1 peli af rjóma
1 krukka af grænu pestó
10 Risarækjur
Blaðlaukur, eftir smekk
4-6 tómatar litlir
Primadonna ostur eða Parmesan, hvort sem þið eigið til
Snittubrauð, ca 2 sneiðar á mann

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum

Setjið rjóman í pott og hitið varlega, bætið saman 2 msk af pestó og hrærið vel saman. Þegar pastað er tilbúið takið þá vatnið af og bætið því saman við rjóman, ásamt tómötunum. Steikið risarækjurnar lítilega á pönnu og kryddið með sítrónupipar, ég notaði sítrónupiparinn frá By Artos og setjið þær saman við réttinn rétt í lokinn.

Spreyjið smá olíu á brauðið eða penslið og setjið smá af osti ofan á og inn í ofn á 180°c í um það bil 10 mínútur

Skreytið að vild. Ég var þarna með vatnakarfa.


Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Pasta & pizzur

Toro réttur með nýrnabaunum!
Toro réttur með nýrnabaunum!

March 16, 2025

Toro réttur með nýrnabaunum!
Áfram heldur einfaldleikinn svona inn á milli, Toro mix og nýrnabaunir sem var einstaklega ljúffengur réttur fyrir þá sem eru hrifnir af hversskonar baunum. Hægt er að nota flestar tegundir bauna í hann þennan og má þá nefna t.d. Nýrnabaunir, Svartar baunir, kjúklingabaunir og Smjörbaunir.

Halda áfram að lesa

Grænmetis pizza!
Grænmetis pizza!

March 07, 2025

Grænmetis pizza!
Þetta þarf ekkert að vera flókið því ef maður er enginn snillingur í að útbúa súrdeigspizzadeig þá fer maður bara og kaupir það tilbúið. Í þetta sinn þá fór ég á Flatey pizza og keypti mér tilbúið deig og tók með heim. Fékk létta kennslu í hvernig best væri að fletja það út, svona með höndunum og var bent á að það væri betra fyrir byrjendur að hafa deigið kalt. 

Halda áfram að lesa

Pizzahringur!
Pizzahringur!

February 06, 2025

Pizzahringur!
Hátíðlegur snúningur fyrir jólin að skella í eins og einn eða tvo pizzahringi. Hérna er ég með tómata, ferskar mozzarella kúlur og basilíku en einfalt er að setja á hringinn það sem ykkur langar til.

Halda áfram að lesa