Rabarbara sulta með jarðarberjum

July 23, 2021

Rabarbara sulta með jarðarberjum

Rabarbara sulta með jarðarberjum
Það er svo gaman að leika sér smá og prufa hitt og þetta samblandað með rabarbaranum og vitið, það er eiginlega alveg sama hvað það er, það er gott.

1.kíló af rabarbara
500-600 gr af sykri
400 gr af jarðaberjum (ég notaði frosin)

Setið á hæðsta hita og látið sykurinn bráðna og lækkið svo niður og látið malla í 2-3 tíma eða þar til hún er vel jöfnuð. Setjið sultuna í hreinar heitar krukkur og geymið í ísskáp eða á köldum stað.

Njótið & deilið með vinum ykkar.

Bakkinn og glasabakkarnir eru frá Hjartalag.is

 

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni





Einnig í Sultur & súrsað

Appelsínusíld Grand mariner
Appelsínusíld Grand mariner

November 24, 2022

Appelsínusíld Grand mariner
Alltaf gaman að gera öðruvísi uppskriftir og þessi er svo sannarlega ein af þeim sem vakti áhuga minn.

Halda áfram að lesa

Ananassíld
Ananassíld

November 24, 2022

Ananassíld
Hressandi síldarmenning og hérna er ein uppskrift af Ananssíld, fersk og ný.

Halda áfram að lesa

Rifsberjasaft
Rifsberjasaft

September 29, 2022

Rifsberjasaft
Frábært að nýta hratið af rifsberjahlaupinu í saft en það gerðum við þegar við vorum að gera rifsberjahlaup/sultu í haust. Þvílíka nammið að eiga í ísskápnum

Halda áfram að lesa