March 29, 2026 2 Athugasemdir
Svínasíða-Purrusteik!
Hérna kemur ein uppskrift sem hentar vel þeim sem eiga og nota Air fryer, þeirri snilldargræju sem eru komnar inn á mörg heimili og ég elska mína og já þeir eru tveir, einn fyrir kjötið og hinn fyrir franskarnar svo allt sé tilbúið á sama tíma.
Það er mjög einfalt að nota þá, margir hræðast þá vegna kunnáttuleysis en þetta er bara eins og lítill ofn með minna rými sem gerir það að verkum að hann er töluvert sneggri að elda fyrir okkur, þessar elskur en þeir henta þó ekki fyrir einhver stór læri eða stóran hrygg en ljómandi vel fyrir hálfa svo eitthvað sé nú nefnt.
Með öllum ofnum fylgja góðar leiðbeiningar, líka uppskriftir og sumir þeirra eru með greinagóðar stillingar, eins og stillingu fyrir franskar, sem á mínum eru 24.mínútur og svo pípa þeir á mann til að snúa við matnum líka eða hrissta franskarnar. Svo er bara að prufa sig áfram og vera óhrædd/ur að nota græjuna.

En að svínasíðu purrusteikinni:
1.stk Svínasíða, fæst víða í búðum
Mitt vísbending til ykkar þegar þið eruð að velja þær, veljið þá þá bita sem eru með góða fitu undir purrunni, ca 1 1/2-2 cm, það er mitt trikk í að fá góða purru áfallalaust.
Kryddið kjötið með salt, pipar og öðru kryddi ef vill, ég nota alltaf líka smá af Season All.
Ef það er ekki búið að skera purruna í rendur eða kodda, þá er um að gera að klára það áður en kryddað er.
Setjið kjötið í Air fryerinn neðarlega á grind og stillið á Air fryer stillinguna og skellið á byrja/start. Ég sný ekki þessum litlu kjötstykkjum við. 30-35 mínútur ætti að vera hæfilegur tími en það miðast auðvitað við þyngd. Minnsta mál er þá að bæta örlítið við tímann.
Með þessu var ég með brúnaðar kartöflur.
Kartöflur
Sykur
Sjóðið kartöflurnar. Skrælið þær þegar þær eru tilbúnar en meðalstórar kartöflur þurfa ca.18 mínútur, gott að taka tímann. Bræðið sykur á pönnu og um leið og sykurinn er við það að vera alveg bráðinn, takið þá pönnuna af og setjið kartöflurnar út á og já, ég nota eingöngu sykur, aldist upp við þá hefð og hef haldið henni alla mína kokkatíð.
Sósan:
1/2 matreiðslurjómi
1 kjötkraftur, bætið við örlitlu meiru ef þurfa þykir
Þurrkaðir lerkisveppir eða aðrar tegundir, ég notaði lerki sveppi sem ég átti til og var búin að leggja smá stund í bleyti til að mýkja þá. Bætið þeim svo út í rjóman og þykkið svo með smá af maizena mjöli.

Það er líka alveg dásamlegt að vera annað hvort með gott rjómasalat með eða ferskt salat og annað meðlæti sem þið viljið. Í þetta sinn þá var ég með þetta afar einfalt.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
May 03, 2026
Góðan dag og takk fyrir. Gætir þú giskað á hvað ég myndi setja mikið gróft saltmagn á purusteikina. Hef notið uppskriftanna þinna. Mjög svo góðar. Kveðja.
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
May 30, 2026
Lambaframhryggsneiðar!
Ég skellti í afmælisveislu og ákvað að bjóða upp á lambakjöt og urðu framhryggssneiðar fyrir valinu bæði sem ég eldaði í ofni og svo fóru einhverjar af þeim í Air Fryerinn sem ég mæli 100% með þegar færri eru í mat og ef hann er til á heimilinu, annars kemur ofninn sterkur inn.
March 29, 2026
Páska lambahryggur!
Margir eru með einhversskonar páskalamb í matinn um páskana og hef ég bæði verið með læri og hrygg með misjöfnu meðlæti. Hérna er ég með stóran lambahrygg, brúna malt og appelsínsósu ofl gott.
October 25, 2025
Entrecote steik, beint frá býli!
Ferðalagi mínu í að kaupa nautakjöt beint frá býli heldur áfram og hérna er ég með nauta entrecote frá Hálsi í Kjós. Þvílíka sælkeramáltíðin sem þetta var og einfaldara en maður heldur.
Ingunn Mjöll
May 03, 2026
Sæl Lóa
Ég myndi ekki setja mikið meira en 1-2.msk á svona litið stykki. Ég hugsa að ég hafi ekki sett meira en eina þarna.
Svo mikið smekksatriði oft, sumir vilja þetta vel salt á meðan aðrir minna. Ég er farin að setja á borðið hjá mér alltaf auka stauka með grófu salti og pipar svo hver og einn geti krydda meira.
Vona að þetta hjálpi eitthvað.
Mínar bestu kveðjur
Ingunn Mjöll/Islandsmjoll