Lambaskankar!

August 11, 2026

Lambaskankar!

Lambaskankar!
Hérna er ég með tvo litla lambaskanka sem ég kryddaði með Best á lambið og setti í Tagini og inn í ofn með öllu meðlætinu og bjó svo til brúna sósu úr soðinu.


Kryddið lambaskankana með Best á lambið

Raðið kartöflum, rauðlauk og gulrætum í kringum kjötið og setjið vatn í botninn til að fá í soðið á sósunni. 

Setjið inn í ofn á 180-200°c í 60 mínútur eða rúmlega það. Ég mæli ávallt með því að lambakjötið sé tekið út 4-5 dögum áður en á að elda það því þá verður það svo mikið meyrara. 

Takið soðið af og búið til sósuna



Sósa:
Soð (gott er að það sé um það bil 500 ml af soði og það má líka bæta saman við það eins og einum tening af kjötkrafti. Þykkið með maizena mjöli.

Njótið vel

Minnsta mál er að panta sér Tagini pott á netinu eða þá bara að nota eldfast mót fyrir réttinn.

Velkomið að deila áfram, takk fyrir.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Kjötréttir

Lambaframhryggsneiðar!
Lambaframhryggsneiðar!

May 30, 2026

Lambaframhryggsneiðar!
Ég skellti í afmælisveislu og ákvað að bjóða upp á lambakjöt og urðu framhryggssneiðar fyrir valinu bæði sem ég eldaði í ofni og svo fóru einhverjar af þeim í Air Fryerinn sem ég mæli 100% með þegar færri eru í mat og ef hann er til á heimilinu, annars kemur ofninn sterkur inn.

Halda áfram að lesa

Svínasíða-Purrusteik!
Svínasíða-Purrusteik!

March 29, 2026 2 Athugasemdir

Svínasíða-Purrusteik!
Hérna kemur ein uppskrift sem hentar vel þeim sem eiga og nota Air fryer, þeirri snilldargræju sem eru komnar inn á mörg heimili og ég elska mína og já þeir eru tveir, einn fyrir kjötið og hinn fyrir franskarnar svo allt sé tilbúið á sama tíma. 

Halda áfram að lesa

Páska lambahryggur!
Páska lambahryggur!

March 29, 2026

Páska lambahryggur!
Margir eru með einhversskonar páskalamb í matinn um páskana og hef ég bæði verið með læri og hrygg með misjöfnu meðlæti. Hérna er ég með stóran lambahrygg, brúna malt og appelsínsósu ofl gott.

Halda áfram að lesa