Lambaframhryggsneiðar!

May 30, 2026

Lambaframhryggsneiðar!

Lambaframhryggsneiðar!
Ég skellti í afmælisveislu og ákvað að bjóða upp á lambakjöt og urðu framhryggssneiðar fyrir valinu bæði sem ég eldaði í ofni og svo fóru einhverjar af þeim í Air Fryerinn sem ég mæli 100% með þegar færri eru í mat og ef hann er til á heimilinu, annars kemur ofninn sterkur inn. Með þessu var ég með tvennsskonar sósur, karrísósu fyrir þá sem elska hana og svo skellti ég í Coka Cola sósu, frumraun mín í því, nammi nammi, mæli með. Soðnar kartöflur og hrisgrjón og svo dásamlega ferskt salat svo allir máttu vel við una. 


Mér finnst afar gott að undirbúa mig snemma fyrir matarboð og er þá oftar en ekki búin að leggja á borð fyrir hádegi dagsins og hérna er ég búin að setja fram sparistellið mitt. Oftar en ekki er eina breytingin blessaðar servétturnar.

Ég kryddaði kjötið með Spænska Papriku S.P.G kryddinu frá By Artos en það er að sjálfsögðu hægt að nota hvaða krydd sem er, þið veljið fyrir ykkur. Í botnin á stóra pottinum sem ég á sem er með grind setti ég 1 dós af Coka Cola, 2 gulrætur skornar í sneiðar og 1 niðurskorin rauðlauk og soðið notaði ég svo til að búa til sósuna og ég bætti engu saman við öðru en Maizena mjöli til að þykkja hana, hún var mjög bragðgóð.

Ég var með ofninn stilltan á 180°c í um 45-50 mínútur. Þær sneiðar sem fóru í Air fryerinn fóru bara beint á aðalstillinguna og var um 24 mínútur, einfaldara getur það ekki verið. Og að sjálfsögðu er hægt að skella þessu á grillið á góðum degi.


Hérna er mynd af kryddinu en svo skemmtilega vill til að það er nú í sölu hérna hjá mér á síðunni fyrir áhugasama ásamt 5 öðrum tegundum. Sjá kryddið



Coka Cola sósan, sjá uppskrift

Ég sauð tvo poka af hrísgrjónum, fullan pott af kartöflum, útbjó pakka karrísósu frá Toro og í ferska salatinu var ég með Ísalat frá Lambhaga og Grispí salat blandað saman ásamt papriku, tómötum og agúrkusneiðum, toppað fyrir þá sem vildu Vegan kubbana frá Live Food og Sinnepssósu sem ég kaupi reglulega í Krónunni. Jú og ekki má gleyma grænu baununum, rauðkálinu og snittubrauðinu, toppað með Malt og appelsíni og íssköldu vatni. Sannkölluð sælkeraveisla og nánast alíslensk.

Þvílíka veislan!

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Kjötréttir

Svínasíða-Purrusteik!
Svínasíða-Purrusteik!

March 29, 2026 2 Athugasemdir

Svínasíða-Purrusteik!
Hérna kemur ein uppskrift sem hentar vel þeim sem eiga og nota Air fryer, þeirri snilldargræju sem eru komnar inn á mörg heimili og ég elska mína og já þeir eru tveir, einn fyrir kjötið og hinn fyrir franskarnar svo allt sé tilbúið á sama tíma. 

Halda áfram að lesa

Páska lambahryggur!
Páska lambahryggur!

March 29, 2026

Páska lambahryggur!
Margir eru með einhversskonar páskalamb í matinn um páskana og hef ég bæði verið með læri og hrygg með misjöfnu meðlæti. Hérna er ég með stóran lambahrygg, brúna malt og appelsínsósu ofl gott.

Halda áfram að lesa

Entrecote steik, beint frá býli!
Entrecote steik, beint frá býli!

October 25, 2025

Entrecote steik, beint frá býli!
Ferðalagi mínu í að kaupa nautakjöt beint frá býli heldur áfram og hérna er ég með nauta entrecote frá Hálsi í Kjós. Þvílíka sælkeramáltíðin sem þetta var og einfaldara en maður heldur. 

Halda áfram að lesa