March 29, 2026
Páska lambahryggur!
Margir eru með einhversskonar páskalamb í matinn um páskana og hef ég bæði verið með læri og hrygg með misjöfnu meðlæti. Hérna er ég með stóran lambahrygg, brúna malt og appelsínsósu ofl gott.
1.lambahryggur
1.dós malt og appelsín
1-2 rauðlaukar
1-2 gulrætur
Blaðlaukur
Uppskrift af sósunni:
Sigtið soðið og setjið i pott, gott getur verið að bæta við einum tening af kjötkrafti en smakkið til. Þykkið sósuna svo með maizena mjöli. Mörgum vinnst gott að bæta út í hana smá rauðvíni eða bláberja sultu t.d.
Kryddið lambakjötið, ég notaði þarna Gott á lambið
Ofninn stilltur á 180°c og hryggurinn settur inn í um 1 1/2 tíma - 2
Páskaborðið 
Páska skraut
Páska hryggur með brúnuðum kartöflum, fersku salati, fetaosti, grænum baunum, rauðkáli, asíum, brúnni malt og appelsínu sósu, toppað með Egils Malt & Appelsín
Gleðilega páska
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
May 30, 2026
Lambaframhryggsneiðar!
Ég skellti í afmælisveislu og ákvað að bjóða upp á lambakjöt og urðu framhryggssneiðar fyrir valinu bæði sem ég eldaði í ofni og svo fóru einhverjar af þeim í Air Fryerinn sem ég mæli 100% með þegar færri eru í mat og ef hann er til á heimilinu, annars kemur ofninn sterkur inn.
March 29, 2026 2 Athugasemdir
Svínasíða-Purrusteik!
Hérna kemur ein uppskrift sem hentar vel þeim sem eiga og nota Air fryer, þeirri snilldargræju sem eru komnar inn á mörg heimili og ég elska mína og já þeir eru tveir, einn fyrir kjötið og hinn fyrir franskarnar svo allt sé tilbúið á sama tíma.
October 25, 2025
Entrecote steik, beint frá býli!
Ferðalagi mínu í að kaupa nautakjöt beint frá býli heldur áfram og hérna er ég með nauta entrecote frá Hálsi í Kjós. Þvílíka sælkeramáltíðin sem þetta var og einfaldara en maður heldur.