April 28, 2020
Nautahakks bollur
Með Mango Chutney, Ritz kexi, sojasósu og piparosti.
Ég veit ekki hvort það var mango chutney ritz kexið, soja sósan eða piparosturinn en ég veit að þetta voru þær allra bestu bollur sem ég hef búið til og samsetningin var æðisleg líka og matargestir mínir voru sammála mér og sögðu þetta allra bestu bollurnar sem þeir hefðu fengið og þá er ég alsæl.
700-800 gr af nautahakki
1.egg
1.bolli Ritz kex eða eftir smekk
1-2.msk af sojasósu
3.msk af Mango Chutney, ég notaði Premium Mango Chutney sem ég keypti í Costco í stórri dós en það er með ekta indversku bragði, svona smá sterkt/sætt en alveg æðislega gott. (Alveg hægt að nota annað ef vill)
1.Piparostur (hálfur í réttinn og hinn helmingurinn ofan á, ég reif hann niður með salatmaster rifjárninu mínu)
Smá hveiti, ég nota eins lítið og ég kemst upp með, bara rétt svo til að halda þeim saman.
Kryddað með Seson All
Smá klípa af smörlíki
Fetaostur
1.stór dós af Hunts pastasósu Italian Sausage
Spagetti (Linguine nr.13) en venjulegt spagetti dugar líka alveg.
Ég byrjaði á að settja hakkið í skál og blanda egginu saman við og sojasósunni, kryddaði með Seson All á alla kannta þegar ég hrærði saman og bætti svo saman við Mango Chutney, piparostinum og muldi svo Ritz kexinu saman við og bætti við smá hveiti til að halda blöndunni aðeins betur saman.
Ég mótaði svo í meðalstórar bollur og setti í eldfast mót og geymdi í ísskáp til dagsins eftir (leyfir kryddinu öllu að blandast vel í hakkið) en örugglega líka alveg í lagi að steikja þær strax en ég mæli með hinu.
Ég setti svo smá smjörlíki á pönnu og steikti bollurnar á báðum hliðum og leyfði þeim að malla í smá stund eða á meðan ég sauð spagettíið, ég reyndar hafði keypt fyrir mistök þykkara pasta sem heitir Linguine n.13 sem var mjög fínt líka en þegar það var tilbúið þá setti ég það í botninn á eldföstu móti, raðaði bollunum jafnt yfir og hellti síðan Hunts pastasósunni yfir og stráði restinni af piparostinum og bætti við slatta af fetaosti og setti inni ofn á 150°c í um 20.mínútur
Þetta var síðan borið fram með hvítlauksbrauði.
Njótið vel og deilið eins og vindurinn!
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
July 13, 2023
April 15, 2023
April 15, 2023