February 10, 2025
Steikt rauðspretta með sítrónukeim!
Rauðspretta er ein af mínum uppáhalds og ég er farin að kaupa hana reglulega og elda mér og þar sem ég hef svo gaman af því að prufa nýjar aðferðir eða krydd þá er ég hérna með Sítrónupipar frá Mabrúka sem var einstaklega ferskt og gott. Með þessu bar ég fram sætkartöflu salat sem var æðislega gott með.
Ég krydda oftar en ekki svolítið áður en ég steiki fiskinn, stundum meira að segja deginum áður og þá finnur maður þetta ekstra ljúffenga kryddbragð.
1 flak af rauðsprettu (á mann)
Sítrónupipar frá Marbrúka
Smjör/smjörlíki/olía, þitt val til að steikja upp úr
Kryddið rauðsprettuflakið á báðum hliðum og steikið á pönnu, ég sný fiskhliðinn niður fyrst og sný henni svo við og læt malla í um 5.mínútur. Svona þunn flök þurfa ekki mikið meira en það svo þau verði ekki þurr.
Bar rauðsprettuna fram með Sætkartöflusalatinu sem var æðislega gott
Kryddin sem ég notaði á rauðsprettuna og í Sætkartöflu salatið
Með þessu bar ég fram Sætkartöflusalat, sjá uppskriftina hérna
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
May 17, 2026
Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu.
May 10, 2026
Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.
February 23, 2026
Fiskivika!
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.