Plokkfiskur, þessi einfaldi!

August 24, 2026

Plokkfiskur, þessi einfaldi!

Plokkfiskur, þessi einfaldi!
Sá einfaldasti sem hægt er að útbúa og er góður á öllum dögum vikunnar. Gott rúgbrauð með og smjör, ekta heimilislegt.

500-700 gr soðinn fiskur
400-500 gr soðnar kartöflur
100 gr smáttskorinn laukur eða 1 laukur
100 gr smjör/smjörlíki
100 gr hveiti
5 dl mjólk 
salt og pipar

Bakið upp sósuna með því að bræða smjörlíki og bæta svo hveitinu saman við svo úr verði smjörbolla. Þynnið hana svo með mjólkinni. Kryddið með salt og pipar og smakkið til. Bætið smátt skornum lauknum út í og svo fiskinum og kartöflunum og látið malla í smá stund. Gott með glænýju rúgbrauði og smjöri.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Fiskréttir

Léttsaltaður Kinnfiskur!
Léttsaltaður Kinnfiskur!

October 26, 2026

Léttsaltaður Kinnfiskur!
Ef þú lesandi góður hefur ekki prufað þær þá mæli ég með því. Þetta er herramannsmatur og mjög svo vanmetinn og með því besta sem ég fæ. Hvítur fiskur, gæða fiskur og alveg ótrúlega góður með kartöflum og bræddu smjöri með smá saltflögum og steinselju.

Halda áfram að lesa

Saltfisks hamborgari!
Saltfisks hamborgari!

May 17, 2026

Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu. 

Halda áfram að lesa

Gratineraður plokkfiskur!
Gratineraður plokkfiskur!

May 10, 2026

Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.

Halda áfram að lesa