May 10, 2026
Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.
Ég geri það reglulega orðið og baka og svo set ég eitt stk fyrir sig í álpappír og í frystipoka og frysti, einstaklega gott að grípa í þegar maður tekur eldhúsfrí.
500 gr soðinn fiskur
500 gr soðnar kartöflur
100 gr smáttskorinn laukur
100 gr smjör
100 gr hveiti
5 dl mjólk
salt og pipar
Sjóðið fiskinn og kartöflurnar í sitthvoru lagi. Kælið lítilega. Kartöflurnar ættu að taka ca 18 mínútur ef þær eru meðalstórar. Fiskurinn um 10 mínútur. Ég læt oftar en ekki suðuna koma upp á vatninu og set þá fisk stykkin út í vatnið og lækka niður. Skerið laukinn niður smátt og bætið honum saman við.
Einhverjir nota líka þessa aðferð með því að hita laukinn í smjörinu þar til hann er orðinn glær, strá þá hveitinu yfir og hræra vel saman. Ég baka upp sósuna fyrst og bæti svo saman við fiskinum, kartöflunum og lauknum. Saltið og piprið eftir smekk og svo er líka hægt að bæta ofaná í restina ljúffengu salti og pipar úr kvörn. Hef það ávallt við hendina því það er svo misjafn hvað fólk vill hafa matinn sinn kryddaðann.
Innn
Innbakaður plokkfiskur í smjördegi. Takið út nokkrar plötur af smjördegi og látið þiðna. Fyllið þær með afganginum af plokkfiskinum og rifinn ost með. Lokið þeim. Pískið egg og smyrjið ofan á með og setjið inn í ofn á 180°c í um það bil 15 mínútur eða þar til smjördegið er orðið gyllt eins og sjá má á mynd. Skreytið að vild og njótið.
Snilld að pakka hverri inn fyrir sig í álpappír og setjið í frystipoka og eigið þar til síðar.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
February 23, 2026
Fiskivika!
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.
January 30, 2026
Sítrónu-silungur!
Silungur kryddaður með sítrónupipar og steiktur á pönnu, borinn fram með bakaðri kartöflu og ljúffengu agúrku-rjómasalati og sinnepssósu, alveg æðisleg blanda.
January 15, 2026
Saltfiskur, steiktur á pönnu!
Hérna er ein afar einföld fyrir einsetufólk eins og mig. Ég hafði reyndar fengið gefins tvær kanarískar sósur sem margir kannast nú við, 1 rauða Mojo Rojo og 1 græna Mojo Verde sem ég notaði bæði með fiskinum og ofan á kartöflurnar sem ég eldaði á spænska vísu.