May 17, 2026
Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu. 
Steikið saltifisk stk á pönnu upp úr smjöri/smjölíki/olíu eftir ykkar smekk og kryddið





Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
October 26, 2026
Léttsaltaður Kinnfiskur!
Ef þú lesandi góður hefur ekki prufað þær þá mæli ég með því. Þetta er herramannsmatur og mjög svo vanmetinn og með því besta sem ég fæ. Hvítur fiskur, gæða fiskur og alveg ótrúlega góður með kartöflum og bræddu smjöri með smá saltflögum og steinselju.
August 24, 2026
Plokkfiskur, þessi einfaldi!
Sá einfaldasti sem hægt er að útbúa og er góður á öllum dögum vikunnar. Gott rúgbrauð með og smjör, ekta heimilislegt.
May 10, 2026
Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.