Sítrónu-silungur!

January 30, 2026

Sítrónu-silungur!

Sítrónu-silungur!
Silungur kryddaður með sítrónupipar og steiktur á pönnu, borinn fram með bakaðri kartöflu og ljúffengu agúrku-rjómasalati og sinnepssósu, alveg æðisleg blanda.


Hérna er ég með 4.stk af silung/bleikju, sítrónupipar frá By Artos og sítrónuolíu sem ég keypti mér í einu af þorpunum 5 á Ítalíu, Cinque Terra en ég elska að krydda deginum áður ef tími gefst, því þá verður til alveg dásamlega bragð bomba!
Hægt er að sjálfsögðu að nota annað krydd og aðra olíu.

Ég var með bakaða kartöflu með, keypti 4 saman forsteiktar sem ég set sjálf í álpappír sem ég krydda vel með grófu salti/saltflögum og með fiskinum var ég með glænýtt Agúrku-rjóma-salat, sjá uppskrift hérna. Það tekur um 30.mínútur að baka kartöfluna í ofni á 180°c, muna bara að snúa henni við.

Ég elska þessa sinnepssósu sem ég nota alveg gífurlega mikið en hana kaupi ég í Krónunni

Máltíð númer 1, fyrri dagur


Máltíð númer 2, seinni dagur í boði hagsýnu húsmóðurinnar.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Fiskréttir

Saltfisks hamborgari!
Saltfisks hamborgari!

May 17, 2026

Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu. 

Halda áfram að lesa

Gratineraður plokkfiskur!
Gratineraður plokkfiskur!

May 10, 2026

Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.

Halda áfram að lesa

Fiskivika 1
Fiskivika 1

February 23, 2026

Fiskivika!
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.

Halda áfram að lesa