November 09, 2025
Rjómalagað gúrkusalat!
Alltaf svo gaman að prufa nýtt meðlæti og hérna skellti ég í ferskt gúrkusalat og var með ljúffengum fiskrétt en það passar vel með kjúkling og kjötréttum líka.
½ bolli sýrður rjómi
1 ½ msk hvítt edik, má gjarnan alveg vera smá meira, smakkið til
3 msk saxað ferskt dill
1 tsk sykur
½ tsk salt
¼ tsk pipar
¼ - 1/2 tsk hvítlauksduft, eftir smekk
1 gúrka
½ lítill rauðlaukur
Snilldar apparat þessi Mandolín en gætið vel að puttunum á ykkur, það er ekki gott að skera sig á þeim. Gamli góði hnífurinn virkar líka vel og margir hafa notað ostaskera.


Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
June 20, 2026
Túnfisksalat með steiktum lauk!
Oftar en ekki þá fer hrár laukur illa í marga og þá er bara að finna eitthvað nýtt með í staðinn og þá kemur þá steikti heitur inn og hann fór allavega ekki illa í mig í salatinu eins og sá hrái og salatið alveg æðislega gott, skemmtileg tilbreyting.
February 14, 2026
Crown Chicken Kjúklingasalat!
Já er það ekki bara...man einhver eftir pítunni okkar á Crown Chicken sem var með kjúklingasalatinu...jéés maður var búin að laga mörg hundruð kíló af þessu salati
September 03, 2025
Eplasalat ferskt!
Dásamlega ferskt og gott, hvort heldur á sumri til eða yfir háveturinn þá léttir það lund og er það að auki einstaklega holt og gott, hvort heldur með mat eða sem máltíð.