December 21, 2025
Rauðrófugrafinn lax með piparrótarsósu!
Uppskrift að hætti Salt eldhússins en þau gáfu mér góðfúslegt leyfi til að deila með ykkur einni af uppskriftunum frá námskeiðinu sem ég fór á hjá þeim sem var alveg hreint æðislegt og ég valdi að deila þessari með ykkur. Lesa má um námskeiðið sem ég fór á sem bar nafnið Jólahlaðborð hérna
Fyrir 12
1 meðalstórt laxaflak
1 rauðrófa
2 msk. kóríanderfræ
1 appelsína, rifinn börkur af henni
100 g salt
120 g sykur
pipar, nýmalaður
Setjið laxaflakið á djúpt fat.
Afhýðið og rífið rauðrófuna gróft niður í skál.
Ristið kóríanderfræin á þurri pönnu, setjið þau á bretti og merjið lítillega. Bætið þeim út í
rauðrófurnar.
Bætið síðan appelsínuberki, salti og sykri og pipar út í og blandið öllu vel saman.
Jafnið þessari blöndu ofan á laxinn. Setjið plastfilmu (eða bökunarpappír) yfir laxinn og setjið síðan
farg ofan á. Fargið getur verið hvað sem er, mjólkurferna, bakki eða bara eitthvað hæfilega þungt
þungt svo betur gangi að grafa laxinn.
Geymið laxinn í kæli í 2 daga og þá er hann tilbúinn.
Skafið rauðrófublönduna ofan af og skerið í fallegar sneiðar.
Berið fram með piparrótasósu og brauði eða blini-kökum
Piparrótasósa:
200 g sýrður rjómi, fullfeitur
50 g mæjónes
1 bréf piparrót eða u.þ.b. 8 cm fersk piparót, rifin fínt
Blandið öllu saman og setjið í skál til að bera fram með laxinum.
Má gjarnan gera daginn áður.
Grafinn laxinn má gjarnan frysta en þá þarf að skafa rauðrófublönduna ofan af áður.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
July 05, 2026
Prótein vöfflur!
Hérna náði ég í 8 stk af ljúffengum próteinvöfflum. Mjög gott að setja hollt og gott álegg á þær eða hreinlega borða eintómar. Ég skellti þeim svo í ísskápinn og naut næstu daga á eftir en minnsta mál er líka að setja þær í frystinn og taka út eftir hendinni.
February 07, 2026
Kínarúllur með hrísgrjónum!
Enn og aftur er það einfaldleikinn, því hver elskar hann ekki inn á milli þess sem maður er að elda allt frá grunni jafnvel, ég allavega þarf á honum að halda svona með og á milli.
December 30, 2025
Beikonvafðar kokteil pylsur!
Beikonvafðar kokteil pylsur eru auðveldar og ljúffengar í partýin og veislurnar.
Henta vel á hvaða veisluborð sem er en líka bara þegar gleðja á krakkana með einhverju öðruvísi í matinn, þau elska það mörg hver eins og við.