October 09, 2026
Burrito með nautahakki!
Nýja uppáhaldið mitt og alveg svakalega gott. Snilld að útbúa og eiga í frystinum og gæða sér svo á þegar maður vill hvíla sig frá eldamennskunni, nú eða hreinalega bjóða fjölskylunni í Burrito veislu.
Nautakjötsfylling:
500 g nautahakk
1 hvítur laukur, saxað vel niður
1 paprika söxuð
3 hvítlauksrif söxuð
1 dós tómatpúrra 140 gr
1-2 msk hunang
2 tsk reykt paprika
1 tsk kúmen
1-2 tsk Chipotle paste (fæst í Bónus) ef ekki til þá má nota chilliduft, smakkið til
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk laukduft, salt og pipar eftir smekk
Steikið hakkið á pönnu úr olíu, smjörlíki eða kókosolíu, eftir ykkar eigin smekk. Bætið lauknum, paprikunni, hvítlauknum saman við og svo restinni af kryddinu og hunanginu. Bætið við salt og pipar ef ykkur finnst vanta meira krydd eða chilidufti.
Til að setja saman
6 stk vefjur stórar
Rifinn ostur
Saxaður kóríander, má sleppa




Chipotle sósa:
3/4 bolli (170 g) fitulaus grísk jógúrt
1 msk létt majónes
1 tsk hunang
1 tsk chipotle paprika í vatni, til að þynna
Chipotle Chili Mayo frá Santa Maria
Chipotle paste er lika til frá Santa María
Svo er líka vel hægt að kaupa hana tilbúna, sjá mynd.
Ég mæli með því að tvöfalda uppskriftina.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
November 08, 2026
Piparkökur með síld!
Stundum stenst maður ekki mátið í að smakka eitthvað nýtt og þarna ákvað ég að prufa að setja síld ofan á piparkökur og skreyta og aðeins neðar þá setti ég gráðost ofan á þær, þvílíka sælgætið bæði, mæli með.
September 13, 2026
Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.
August 03, 2026
Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!