Brauð í ofni með banana!

August 03, 2026

Brauð í ofni með banana!

Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!

Hvað þarf að eiga:
Banana
Brauð
Ost
Smjör

Smyrjið brauðið, skerið banana í sneiðar og raðið ofan á brauðsneiðarnar

Setjið ostasneiðar ofan á og skellið inn í ofn á 180°c þar til osturinn er bráðinn eða beint í Air Fryerinn í nokkrar mínútur.


Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni






Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Smáréttir

Piparkökur með síldi!
Piparkökur með síldi!

November 08, 2026

Piparkökur með síld!
Stundum stenst maður ekki mátið í að smakka eitthvað nýtt og þarna ákvað ég að prufa að setja síld ofan á piparkökur og skreyta og aðeins neðar þá setti ég gráðost ofan á þær, þvílíka sælgætið bæði, mæli með.

Halda áfram að lesa

Burrito með nautahakki!
Burrito með nautahakki!

October 09, 2026

Burrito með nautahakki!
Nýja uppáhaldið mitt og alveg svakalega gott. Snilld að útbúa og eiga í frystinum og gæða sér svo á þegar maður vill hvíla sig frá eldamennskunni, nú eða hreinalega bjóða fjölskylunni í Burrito veislu.

Halda áfram að lesa

Píta með kjúklingaáleggi!
Píta með kjúklingaáleggi!

September 13, 2026

Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.

Halda áfram að lesa