Kínarúllur með hrísgrjónum!

February 07, 2026 2 Athugasemdir

Kínarúllur með hrísgrjónum!

Kínarúllur með hrísgrjónum!
Enn og aftur er það einfaldleikinn, því hver elskar hann ekki inn á milli þess sem maður er að elda allt frá grunni jafnvel, ég allavega þarf á honum að halda svona með og á milli.


Kínarúllur, fást með mismunandi fyllingum tilbúnar t.d. í flest öllum matvöruverslunum
Hrísgrjón, 1 poki
Túrmerik
Súrsæt sósa

Hitið kínarúllurnar upp í ofni á 180°c í um 30-40 mín ef þær eru frosnar, skemur ef þær eru þiðnaðar og eins er líka hægt að skella þeim í Air-fryer ef hann er til á heimilinu.

Þarna bar ég svo fram líka Rjómalagað agúrkusalat og ferskt salat sem ég átti til.

Sjóðið hrísgrjónin í pokanum samkvæmt leiðbeiningum. Tæmið vatnið af og takið hrísgrjónin úr pokanum og setjið hann aftur í pottinn og bætið saman við 1-2 tsk af Túrmerik. Ég keypti mér einu sinni svona stóra hrísgrjónaskeið sem ég elska að gera fallegar kúlur með, gerir matinn eitthvað svo meira girnilegri á stundum en hæglega er hægt að gera kúlu bara með höndunum. 

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




2 Svör

Ingunn Mjöll
Ingunn Mjöll

August 16, 2026

Sæl Margrét

Gaman að heyra, hjartans þakkir :)
Fullt af uppskriftum, yfir 800 eins og er og fara fjölgandi.

Eins og er kostar ekkert en það gæti orðið breyting á og að ég fari að bjóða áskriftargjald þar sem allt í sambandi við rekstur svona síðu kostar og ég hef gert þetta allt hingað til á mínum eigin kostnaði en nú eru hinir og þessir farnir að krefjast greiðslu fyrir afnot og þar á meðan Meta (feisbókin) ef maður vill deila efni yfir á síðurnar sínar). En þá verður það ekki hátt gjald.

Mínar bestu kveðjur
Ingunn Mjöll/Islandsmjoll

Margrét Thorlacius
Margrét Thorlacius

August 16, 2026

Mér lýst vel á uppskriftirnar hjà þér ætla að búa til eitthvað eftir þeim.
Hvað kostar að vera með ?

Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Smáréttir

Brauð í ofni með banana!
Brauð í ofni með banana!

August 03, 2026

Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!

Halda áfram að lesa

Samlokur & brunch réttir!
Samlokur & brunch réttir!

July 19, 2026

Samlokur & brunch réttir!
Hérna munu koma fleirri tillögur að samlokum og brunch réttum en fjölbreytileikinn er endalaus og allar tillögur frá ykkur eru meir en velkomnar.

Halda áfram að lesa

Prótein vöfflur!
Prótein vöfflur!

July 05, 2026

Prótein vöfflur!
Hérna náði ég í 8 stk af ljúffengum próteinvöfflum. Mjög gott að setja hollt og gott álegg á þær eða hreinlega borða eintómar. Ég skellti þeim svo í ísskápinn og naut næstu daga á eftir en minnsta mál er líka að setja þær í frystinn og taka út eftir hendinni.

Halda áfram að lesa