December 20, 2020
Kartöflukonfekt!
Þvílíka snilldin þetta konfekt, maður trúir eiginlega ekki hvað þetta er gott þegar maður les uppskriftina en trúið mér, þetta er æði og kartöflur hvað, hmm
100 gr. soðnar kartöflur ca 1 meðalstór (má stækka uppskriftina) látið þær kólna
500.gr flórsykur
1.tsk piparmyntudropar
Stappið vel saman og búið svo til litlar kúlur
Hjúpur utan um
100.gr súkkulaði (við notuðum bæði ljóst og dökkt, sjá mynd)
1,msk olía
Brætt saman yfir vatnsbaði og svo kúlunum velt upp úr og þær síðan kældar.
Geymast vel í frysti og svo má læða sér í eina, tvær þegar manni langar í.
Svo dásamlegt var að sjá að þegar uppskriftin kom inn á síðuna þá voru nokkrar sem könnuðust við hana en með skemmtilega misjöfnum útfærslum, læt þær fylgja með hérna fyrir neðan.
Setja kakó og flórsykur í stappaða kartöfluna og velta svo kúlunni upp úr kókósmjöli.
Er gott líka með appelsínu dropum ofl
Deilið með gleði
Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
December 17, 2023
December 17, 2023
February 26, 2023