Bóndakökur sælkera!

December 09, 2025

Bóndakökur sælkera!

Bóndakökur sælkera!
Hérna er önnur uppskrift af Bóndakökum en þessi er með haframjöli, hin með kókos, báðar bera saman nafn. Hérna er ég svo búin að bæta við smá sælkerabrag á þær með því að setja smjörkrem á milli þeirra sem er æðislega gott en gott að eiga til bæði.


Bóndakökur, uppskrift nr.2 með haframjöli en ekki kókos, ættu kannski að heita bara Hafrakökur.

150 gr hveiti 
400 gr haframjöl 
½ tsk sódaduft 
100 gr smjörlíki 
100 gr sykur 
1-2 msk sýróp 
2 egg 

Hnoðað deig. Velt í lengjur sem skornar eru í jafna bita.



Hver biti er hnoðaður milli handanna í kúlur sem látnar eru á smurða plötu og flattar út með breiðu hnífsblaði eða gaffli.



Kökurnar eru bakaðar í miðjum ofni í 8-10 mín. 
Hiti 200-225°c. Jafn undir og yfir hiti. 


Einfaldar Bóndakökur

Ég skellti svo smjörkremi á ca helminginn

Hérna má finna uppskrift af smjörkreminu. Kannski gott að hafa þær aðeins þynnri ef maður ætlar að setja smjörkrem á milli ef maður vill minni.

Dásamlegt ef deilt er áfram og svo finnur þú síðuna líka á Instagram.

Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

Vertu velkomin að koma og vera með Brauðtertur & heitir réttir hópnum á feisbók




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Smákökur

Bananastykki!
Bananastykki!

December 21, 2025

Bananastykki!
Hérna kemur ein útgáfa af kartöflukonfektinu en hérna er ég búin að skella þeim í bæði kúlur og lengjur. Lengjurnar minna óneytanlega á gömlu góðu bananastykkin sem fengust einu sinni, kannski þau fáist enn einhversstaðar en ég hef ekki séð þau.

Halda áfram að lesa

Vanillukossar!
Vanillukossar!

January 29, 2025

Vanillukossar!
Í fyrra (2023) þá setti ég saman piparkökur með smjörkremi og dýfði í súkkulaði og skeytti en í þetta skiptið (2024) setti ég saman vanilluhringi með smjörkremi á milli og dýfði þeim svo til helmings ofan í brætt súkkulaði. Gerði mikla lukku hjá mér og þeim sem hafa smakkað, minnir svolítið á kossana/skeljarnar sem margir þekkja.

Halda áfram að lesa

Piparkökur með smjörkremi
Piparkökur með smjörkremi

December 17, 2023

Piparkökur með smjörkremi
Þegar manni langar í eitthvað nýtt og öðruvísi þá bara gerir maður það. Ég reyndar var rosalega ánægð með mig að hafa fattað upp á þessu og sagði vinkonu minni hvað mig langaði til að gera og þá sagði skvís,,,

Halda áfram að lesa