Spínat pizza

July 16, 2024

Spínat pizza

Spínat pizza
Aðeins öðru vísi en aðrar pizzur því þarna nota ég ekki hina hefðbundnu pizza sósu, heldur Pasta sósu frá Filippo Berio, Arrabbiata sósuna sem er nýleg á markaðinum hjá Innnes. Þessi tekur pizzuna á annað stig og tegundirnar sem í boði eru fyrir utan þessa eru Basilico, Olive og Verdure grænmetissósa.

Þær verða prufaðar ein af annarri hjá mér en sú fyrsta lofaði heldur betur góðu og ég notaði hana svo líka í æðislegan kjúklingarétt, sjá hérna.

Fletjið út pizzadeig, annað hvort tilbúið deig eða sem þið búið til frá grunni

Pizzadeig
225 g hveiti 
1 pakki þurrger 
1/2 tsk salt 
2 msk ólífuolía 
5 msk volgt vatn 
1 egg 

Öllu blandað saman og hnoðað vel, látið hefast á hlýjum stað. 
Mótið botninn úr deiginu og setjið á smurða bökunarplötu. 
Breiðið ofan á degið og látið standa í 10 mínútur áður en fyllingin er sett á. 


Dreifið Arrabbiata sósunni yfir botninn

Bætið við mosarellaosti, spínati og kokteiltómötum

Þessi er æðislegur ofan á pizzuna í restina, raspaður niður 

Bakið pizzuna á 180°c í um 20-25 mínútur eða þar til hún er farin að verða stökk og góð allan hringinn.

Fyrir þá sem vilja toppa hana með einhverju fleirri þá er ljúffengt að bæta ofan á hana Hráskinku og setja hana aðeins inn aftur, sumir vilja hana þó kalda.

Stráið svo rifnum Parmigiano osti yfir. Ég bætti ofan á hana extra nýja Barbeque snakkinu frá Maarrud sem heitir Grilled Ribs sem að þessu sinni toppaði hana alveg!

Verði ykkur að góðu!

Þakklát fyrir allar deilingar áfram og leyfið mér endilega að heyra hvernig ykkur líkaði ef þið prufið uppskriftina, það má merkja okkur líka á Instagram.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni





Einnig í Pizzur

Pizzur í pizzaofni!
Pizzur í pizzaofni!

June 15, 2026

Pizzur í pizzaofni!
Eftir að hafa farið á pizzanámskeið þá var ekki aftur snúið!
Aðalumræðan á námskeiðinu var hvernig ofna fólk ætti eða hvernig ofna þeir ætluðu að fá sér, það var allavega draumur alla á staðnum enda er þetta svo sannarlega komið á allt annað stig þegar maður setur pizzurnar...

Halda áfram að lesa

Pizzasnúðar!
Pizzasnúðar!

May 23, 2026

Pizzasnúðar!
Hérna er ég með æðislega pizzasnúða með pepperoní en að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða fyllingu sem ykkur langar í, skipta t.d. pepperoní út fyrir skinku eða kjúkling.

Halda áfram að lesa

Pizza pepperoní og bananar!
Pizza pepperoní og bananar!

January 07, 2026

Pizza pepperoní og bananar!
Ég elska pizzur með banana ofan á og ég veit að margir tengja við það á meðan aðrir gera það ekki en ég skora samt á ykkur að prufa einn daginn, hvort heldur með pepp eða skinku.

Halda áfram að lesa