Pizzur í pizzaofni!

June 15, 2026

Pizzur í pizzaofni!

Pizzur í pizzaofni!
Eftir að hafa farið á pizzanámskeið þá var ekki aftur snúið!
Aðalumræðan á námskeiðinu var hvernig ofna fólk ætti eða hvernig ofna þeir ætluðu að fá sér, það var allavega draumur alla á staðnum enda er þetta svo sannarlega komið á allt annað stig þegar maður setur pizzurnar í svona ofna og já ég hef reynsluna af því. En þetta er smá kúnst, það verður að segjast en æfingin skapar meistara og maður lærir svo sannarlega af byrjenda misstökum. Svo ég ætla að gefa ykkur ábendingar á hvað ber að varast og deila með ykkur mínum pizzaofni sem ég valdi frá JAX handverk sem heitir Morso, æðislegur ofn og ég elska útlitið á honum og svo er hann með snúningsdisk og er 16 tommu.

Þetta er mín upplifun og ekki í neinu samstarfi svo það sé sagt strax!


Pizza ofninn er frá JAX handverk

Tilbúið pizzadeig eða pizzakúla, fást víða og ég hef keypt bæði frosnar þegar einhver er í fjáröflun og eins í búðum og á pizzastöðum, þær fást ansi víða. Svo er auðvitað frábært ef fólk gerir sitt eigið deig líka. Gott að hafa svona mikið val ;)

Fletjið út deigið og notið annað hvort hveiti eða Semolina pizzahveiti. Hvort heldur sem þið notið þá er afar áríðandi að nota vel af því og að deigið sé vel þurrt undir áður en það er sett á pizzahringinn og inn í ofn því annars festist það á og verður að klessu, ég er búin að læra af mistökunum mínum og deili þeim því með ykkur og passið vel upp á þegar verið er að baka pizzuna, 2 mínútur eru fljótar að líða og maður skreppur ekkert frá á meðan.

Setjið pizzasósu ofan á fyrst, svo ostinn, þar á eftir pepperoní og jafnvel meira af osti ef vill

Færið pizzuna ofan á pizza spaðann og skellið inn i ofninn

Það fylgja allar leiðbeiningar með ofninum en það tekur einhverja stund að hita hann upp og þá er ekkert úr vegi að byrja að baka pizzurnar, eina af annarri ef þær eru margar en gerið þær jafn óðum, munið, svo að þær festist ekki á pizzaspaðanum og verið að klessu (þær eru nefnilega ansi fljótar að blotna í gegn þegar búið er að setja sósuna á þær)

Þá hefst hringferð pizzunnar og vitið, það er bara nokkuð gaman og áhugavert að fylgjast með, því allt í einu þá er hún bara tilbúin, munið, aðeins tvær mínútur. 

Ég man þegar ég bauð foreldrum mínum fyrst í pizzu þá var pabbi alveg undrandi þegar ég fór út með pizzuna og kom svo bara aftur inn nánast strax, hva, er hún tilbúin, já, það eru þessar tvær, þær líða eins og að smella fingri.

Og þá er bara að taka hana út með spaðanum góða

Sumir vilja bara með pepperoní

En svo má líka toppa pizzuna með Burrata osti og hunangi, kryddað í restina lítilega með Oregano.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni





Einnig í Pizzur

Pizzasnúðar!
Pizzasnúðar!

May 23, 2026

Pizzasnúðar!
Hérna er ég með æðislega pizzasnúða með pepperoní en að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða fyllingu sem ykkur langar í, skipta t.d. pepperoní út fyrir skinku eða kjúkling.

Halda áfram að lesa

Pizza pepperoní og bananar!
Pizza pepperoní og bananar!

January 07, 2026

Pizza pepperoní og bananar!
Ég elska pizzur með banana ofan á og ég veit að margir tengja við það á meðan aðrir gera það ekki en ég skora samt á ykkur að prufa einn daginn, hvort heldur með pepp eða skinku.

Halda áfram að lesa

Pizza með Mozzarella!
Pizza með Mozzarella!

September 05, 2025

Pizza með Mozzarella!
Þessi ofureinfaldi grunnur sem allir krakkarnir elska og við fullornu líka og svo bara velur hver og einn fyrir sig hvað hann vill fá aukalega ofan á pizzuna sína. Ég elska fjölbreytileikan og er dugleg við að prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt.

Halda áfram að lesa