Pizzasnúðar!

May 23, 2026

Pizzasnúðar!

Pizzasnúðar!
Hérna er ég með æðislega pizzasnúða með pepperoní en að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða fyllingu sem ykkur langar í, skipta t.d. pepperoní út fyrir skinku eða kjúkling.

Hérna má sjá það hráefni sem ég notaði í pizzasnúðana

Pizza deig tilbúið
Pepperoni
Pizza sósa
Pizzaostur

Fletjið deigið út og berið sósuna á

Síðan ostinn og pepperoní

Rúllið upp og skerið í jafna parta

Raðið þeim svo í hring á smjörpappír og setjið inn í ofn á 180°c í ca.30 mínútur en fylgist með svo þeir verði ekki of bakaðir

Pizza snúða hringurinn tilbúinn

Setjið sósuna í skál og setjið hana inn í á milli í hringinn og berið fram


Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni





Einnig í Pizzur

Pizza pepperoní og bananar!
Pizza pepperoní og bananar!

January 07, 2026

Pizza pepperoní og bananar!
Ég elska pizzur með banana ofan á og ég veit að margir tengja við það á meðan aðrir gera það ekki en ég skora samt á ykkur að prufa einn daginn, hvort heldur með pepp eða skinku.

Halda áfram að lesa

Pizza með Mozzarella!
Pizza með Mozzarella!

September 05, 2025

Pizza með Mozzarella!
Þessi ofureinfaldi grunnur sem allir krakkarnir elska og við fullornu líka og svo bara velur hver og einn fyrir sig hvað hann vill fá aukalega ofan á pizzuna sína. Ég elska fjölbreytileikan og er dugleg við að prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt.

Halda áfram að lesa

Pizza Burrata!
Pizza Burrata!

July 25, 2025

Pizza Burrata!
Þessi ostur er bara eitthvað annað, segi það og skrifa! Var að smakka hann í mitt fyrsta sinn, já það er satt og ég get sagt ykkur að það er og verður ekki í það síðasta. Þvílíki sælkeraosturinn, toppaður með hunangi.

Halda áfram að lesa