Pizza með risarækjum!

November 15, 2024

Pizza með risarækjum!

Pizza með risarækjum!
Ég lagði upp með að gera allar pizzurnar úr pizza mixinu frá Toro með risarækjum en svo þegar ég byrjaði þá breyttust plönin mín eins og svo oft áður og úr varð, 1 pizza með risarækjum, 1 pizza með pepperóní og svo úr þriðja hlutanum bjó ég til kanilstangir, virkilega skemmtileg tilbreyting og líka svo gott allt saman!

Í máli & myndum

1 pk Toro mix blanda, farið eftir leiðbeiningunum, ég nota ávallt olíu

Hrærið Toro mixið saman og látið hefast í um 60 mínútur yfir heitu vatnsbaði eða ofaná ofni

Skiptið deiginu í 3 hluta

Pizza nr 1
1 hluti pizzadeigsins
Pizzasósa
Risarækjur
Sítrónupipar
Rjómaostur (ég notaði ostinn í bláu dósunum)
Mosarellaostur
Pizzakrydd frá Kryddhúsinu eða annað sambærilegt

Pizzadeig, pizzasósa, mosarellaostur, rjómaostur og pizzakrydd

Bakið pizzu númer 1 í um 15-20 mínútur áður en risarækjurnar eru settar ofan á

Steikið risarækjurnar í olíu og kryddið með sítrónupipar frá By Artos sem fæst hérna og setjið þær svo ofan á pizzuna og inn í ofn í smá stund.


Pizza 2
1 hluti pizzadeigsins
Pizzasósa
Pepperoni
Rjómaostur (ég notaði ostinn í bláu dósunum)
Mosarellaostur
Pizzakrydd frá Kryddhúsinu eða annað sambærilegt

Pizzadeig, pizzasósa, pepperoní, mosarellaostur, rjómaostur, pizzakrydd
Sett inn i 180°c heitan ofn í ca 15-20 mínútur ef hann er orðinn heitur.


Kanilstangir 3
Fletjið deigið út og skerið í lengjur og kryddið með kanilsykri
Bakið í ofni í um 15 mínútur

Fletjið deigið út og skiptið 6 lengjur

Stráið yfir þær kanilsykri og setjið svo inn í ofn á 180°c í um 15 mínútur

Ljúffengar nýbakaðar kanilstangir

Ljúffeng pizza pepperoní

Ljúffeng pizza með risarækjum og rjómaosti

Svona er einfalt að útbúa pizza veislu með Toro mixinu sem passar í 3 pizzur eða 2 og kanilstangir, nú eða í eina risastóra, þið veljið.

Dásamlega góð máltíð

Restina á ég svo til góða til að taka út eftir hendinni þegar ég tek mér frí frá eldamennskunni, snilldin ein og ekki arða fer til spillis.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni





Einnig í Pizzur

Pizzur í pizzaofni!
Pizzur í pizzaofni!

June 15, 2026

Pizzur í pizzaofni!
Eftir að hafa farið á pizzanámskeið þá var ekki aftur snúið!
Aðalumræðan á námskeiðinu var hvernig ofna fólk ætti eða hvernig ofna þeir ætluðu að fá sér, það var allavega draumur alla á staðnum enda er þetta svo sannarlega komið á allt annað stig þegar maður setur pizzurnar...

Halda áfram að lesa

Pizzasnúðar!
Pizzasnúðar!

May 23, 2026

Pizzasnúðar!
Hérna er ég með æðislega pizzasnúða með pepperoní en að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða fyllingu sem ykkur langar í, skipta t.d. pepperoní út fyrir skinku eða kjúkling.

Halda áfram að lesa

Pizza pepperoní og bananar!
Pizza pepperoní og bananar!

January 07, 2026

Pizza pepperoní og bananar!
Ég elska pizzur með banana ofan á og ég veit að margir tengja við það á meðan aðrir gera það ekki en ég skora samt á ykkur að prufa einn daginn, hvort heldur með pepp eða skinku.

Halda áfram að lesa