September 06, 2021

Pizzadeig:
225 g hveiti
1 pakki þurrger
1/2 tsk salt
2 msk ólífuolía
5 msk volgt vatn
1 egg
Hráskinka
Pizzasósa
Mosarellaostur
Rucola
Parmesan ostur

Öllu blandað saman og hnoðað vel, látið hefast á hlýjum stað.
Mótið botninn úr deiginu og setjið á smurða bökunarplötu.
Breiðið ofan á degið og látið standa í 10 mínútur áður en fyllingin er sett á.

Fletjið deigið út og setjið pizzasósuna yfir og stráið mozarella osti ofan á og inn í hringinn í þessu tilfelli fyrir þá sem vilja og setjið inn í ofn á 180°c þar til gullinbrúnt og takið þá út og raðið hráskinkunni ofan á og rucola, ásamt rifnum Parmesan osti og njótið svo veislunnar.
Deilið með gleði.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
May 23, 2026
Pizzasnúðar!
Hérna er ég með æðislega pizzasnúða með pepperoní en að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða fyllingu sem ykkur langar í, skipta t.d. pepperoní út fyrir skinku eða kjúkling.
January 07, 2026
Pizza pepperoní og bananar!
Ég elska pizzur með banana ofan á og ég veit að margir tengja við það á meðan aðrir gera það ekki en ég skora samt á ykkur að prufa einn daginn, hvort heldur með pepp eða skinku.
September 05, 2025
Pizza með Mozzarella!
Þessi ofureinfaldi grunnur sem allir krakkarnir elska og við fullornu líka og svo bara velur hver og einn fyrir sig hvað hann vill fá aukalega ofan á pizzuna sína. Ég elska fjölbreytileikan og er dugleg við að prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt.