Tariello pastaréttur!

December 13, 2024

Tariello pastaréttur!

Tariello pastaréttur!
Tariello pasta og Nduja sterk krydduð er mjúkt kryddað svínakjöt að ítalskri hefð sem ég blandaði svo saman við rjóma og Ricotta e Noci pesto ásamt sveppum og blaðlauk, einstaklega einfaldur en gómsætur pastaréttur sem bragð er af.

Tariello Lingune pasta ca f.2
1 pk Nduja sterk krydduð

Rjóma eða matreiðslurjóma, ca 3/4
2-3 msk af Ricotta e Noci pesto
4-6 sveppi eftir stærð, skornir niður
Blaðlaukur

Sjóðið pastað samk.leiðbeiningum pakkans

Setjið rjóman í pott og hitið upp, bætið saman við pestóinu, sveppum og blaðlauk

Þegar blandan og pastað er tilbúið setjið þá pastað saman við

Og látið malla í smá stund

Stráið parmesan yfir réttinn og berið fram með nýju brauði eða eitt og sér


Uppskrift og myndir
Ingunn Mjöll/Islandsmjoll

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni





Einnig í Pasta

Lasagna með spínati og hakki!
Lasagna með spínati og hakki!

March 07, 2026

Lasagna með spínati og hakki!
Hérna er á ferðinni einstaklega gott heimagert lasagna með blönduðu hakki, spínati, rauðlauk og hvítri sósu ofl. Mjög gott að skella í stórt eldfast mót ef margir eru í mat en annars er gott að setja í minni mót og skella þeim í frystinn. Alltaf gott að eiga til góða.

Halda áfram að lesa

Sveppapasta!
Sveppapasta!

June 25, 2025

Sveppapasta!
Gourme pasta með Furusveppasósu og Furusveppum, pastað ættað frá Ítalíu, sósan frá vestfjörðum okkar fagra Íslands og handtýndir furusveppir frá Hallormsstað á austfjörðunum. Svakalega góð blanda sem ég hreinlega elskaði. Ég verð líka að bæta því við að bæði sósan og sveppirnir fást líka sem Lerkisveppasósa og sveppir. Allt alveg dúndurgott!

Halda áfram að lesa

Tagliolini al Tartufo!
Tagliolini al Tartufo!

June 11, 2025

Tagliolini al Tartufo!
Skellti mér í bíltúr í Háls í Kjós til að versla mér smávegis nautakjöt beint frá býli en þar voru þau að selja líka sælkeravörunar frá Tariello svo ég verslaði mér þetta líka fína pasta sem endaði svo með hágæða íslenskum vörum og úr varð Sælkeramáltíð fyrir allan peningin. Þetta er eitt það allra besta pasta sem ég hef fengið.

Halda áfram að lesa