Lasagna með spínati og hakki!

March 07, 2026

Lasagna með spínati og hakki!

Lasagna með spíntai og hakki!
Hérna er á ferðinni einstaklega gott heimagert lasagna með blönduðu hakki, spínati, rauðlauk og hvítri sósu ofl. Mjög gott að skella í stórt eldfast mót ef margir eru í mat en annars er gott að setja í minni mót og skella þeim í frystinn. Alltaf gott að eiga til góða.


500.gr af blönduðu hakki eða nautahakki
1 pk af Spínati
1 krukka af hvítri sósu, sjá mynd
1 dós tómatar 
1 dós pasta/pizza sósa
1 rauðlaukur, niðurskorin
Lasagna blöð
Tómatar
Rifinn ostur

Steikið hakkið á pönnu upp úr olíu/smjörlíki og kryddið með Seson All t.d. Bætið niðurskornum rauðlauknum saman við og látið malla þar til að þið sjáið að kjötið er tilbúið og rauðlaukurinn orðinn mjúkur. 

Bætið þá út á tómötunum í dós og pasta/pizza sósu og hrærið vel saman

Því næst setjið þið saman við spínatinu

Látið malla í ca.10 mínútur

Byrjið svo á að setja kjötkássunu á botninn, þar á eftir hvítu sósunni, lasagnablöðum og svo koll af kolli, endið á kjötsósunni



Skerið niður ferska tómata og raðið ofan á, gott að salta og pipra smávegis yfir

Að lokuð stráið þið rifnum osti og setjið inn í ofn á 180°c í um 15-20.mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.



Borið fram með fersku salati, sultu og góðu brauði t.d.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni





Einnig í Pasta

Sveppapasta!
Sveppapasta!

June 25, 2025

Sveppapasta!
Gourme pasta með Furusveppasósu og Furusveppum, pastað ættað frá Ítalíu, sósan frá vestfjörðum okkar fagra Íslands og handtýndir furusveppir frá Hallormsstað á austfjörðunum. Svakalega góð blanda sem ég hreinlega elskaði. Ég verð líka að bæta því við að bæði sósan og sveppirnir fást líka sem Lerkisveppasósa og sveppir. Allt alveg dúndurgott!

Halda áfram að lesa

Tagliolini al Tartufo!
Tagliolini al Tartufo!

June 11, 2025

Tagliolini al Tartufo!
Skellti mér í bíltúr í Háls í Kjós til að versla mér smávegis nautakjöt beint frá býli en þar voru þau að selja líka sælkeravörunar frá Tariello svo ég verslaði mér þetta líka fína pasta sem endaði svo með hágæða íslenskum vörum og úr varð Sælkeramáltíð fyrir allan peningin. Þetta er eitt það allra besta pasta sem ég hef fengið.

Halda áfram að lesa

Toro réttur með nýrnabaunum!
Toro réttur með nýrnabaunum!

March 16, 2025

Toro réttur með nýrnabaunum!
Áfram heldur einfaldleikinn svona inn á milli, Toro mix og nýrnabaunir sem var einstaklega ljúffengur réttur fyrir þá sem eru hrifnir af hversskonar baunum. Hægt er að nota flestar tegundir bauna í hann þennan og má þá nefna t.d. Nýrnabaunir, Svartar baunir, kjúklingabaunir og Smjörbaunir.

Halda áfram að lesa