February 11, 2020
Tagliatelle kjúklinga pastaréttur frá Rustichella
Við vinkonurnar tókum þátt í uppskrifta keppni einu sinni og var þetta annar rétturinn af tvemur sem við sendum inn. Við vorum virkilega ánægðar með okkur og alsælar með uppskriftina enda voru verðlaunin ekki af verri endanum, ferð til Ítalíu.
Við vorum reyndar ekki þær heppnu sem unnum ferðina en uppskriftin var algjörlega okkar og við höfðum gaman af að taka þátt, elda og svo myndaði ég allt saman og setti einnig saman í videó. Sjá hér

1 kjúklingabringa
6 tagliatelle
1 dós Pomodore basilíka
1 lítil dós kókosmjólk
ólívur grænar fylltar með ansjósum
steinselja, eftir smekk
Piccolo tómatar, 1 askja
3 hvítlauksrif
¾ rautt chilli, sleppið fræjunum
Chilli flögur rauðar
Salt
Pipar
Basilíkum olía
Kasjúhnetur, ca 1 dl
Prima Donna ostur (raspaður)
Setjið olíu á pönnuna og hitið. Skerið niður rautt chilli smátt og setjið út á pönnuna ásamt smátt söxuðum hvítlauksrifum. Skerið kjúklingabringuna í smá bita og steikið með hvítlauknum og chilliinu. Hellið kókosmjólkinni yfir og hrærið vel og bætið svo Pomodoro sósunni út í, saltið og piprið eftir smekk og smakkið til.
Stráið chilli flögum yfir og bætið svo út í ólívunum, tómötunum, steinseljunni og kasjúhnetunum. Raspið Prima Donna ostinum yfir eftir smekk. Sjóðið Tagliatelle á meðan eins og stendur á pakkanum, hellið vatninu af og blandið saman við réttinn. Setjið réttinn á fallegt fat eða skál og stráið saxaðri steinselju og raspið primadonna ostinum yfir.
Berið fram með hvítlauksbrauði og ísköldu hvítvíni.
Uppskrift eftir Ingunni & Guðrúnu
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
March 07, 2026
Lasagna með spínati og hakki!
Hérna er á ferðinni einstaklega gott heimagert lasagna með blönduðu hakki, spínati, rauðlauk og hvítri sósu ofl. Mjög gott að skella í stórt eldfast mót ef margir eru í mat en annars er gott að setja í minni mót og skella þeim í frystinn. Alltaf gott að eiga til góða.
June 25, 2025
Sveppapasta!
Gourme pasta með Furusveppasósu og Furusveppum, pastað ættað frá Ítalíu, sósan frá vestfjörðum okkar fagra Íslands og handtýndir furusveppir frá Hallormsstað á austfjörðunum. Svakalega góð blanda sem ég hreinlega elskaði. Ég verð líka að bæta því við að bæði sósan og sveppirnir fást líka sem Lerkisveppasósa og sveppir. Allt alveg dúndurgott!
June 11, 2025
Tagliolini al Tartufo!
Skellti mér í bíltúr í Háls í Kjós til að versla mér smávegis nautakjöt beint frá býli en þar voru þau að selja líka sælkeravörunar frá Tariello svo ég verslaði mér þetta líka fína pasta sem endaði svo með hágæða íslenskum vörum og úr varð Sælkeramáltíð fyrir allan peningin. Þetta er eitt það allra besta pasta sem ég hef fengið.