November 07, 2026
Miðhraun - Lava Resort!
Falinn perla á Snæfellsnesinu fagra.
Í þriggja nátta helgarferð minni gisti ég í Ömmuhúsi á Miðhrauni - Lava Resort sem er staðsett ekki langt frá vegamótunum þegar maður er að fara á Stykkishólm en þangað lá leið mín svo áfram næsta dag. 

Ég kom þarna á miðjum degi og skráði mig inn í móttökunni hjá henni Melindu í Hlöðunni.
Ég ákvað að fá mér einn ljúffengan kaffibolla og bakaðan Bríe ost sem var æðislegur.
Þá var næst að koma sér fyrir í Ömmuhúsi og taka sig til fyrir Jarðhitabaðið en þangað fór ég og naut þess að láta líða úr mér eftir daginn, eiginlega alveg dásamlegur endir sem væri gott að geta gert á hverjum degi. Ég læt myndirnar tala fyrir mig.




Nú eftir þessa dásamlegu náttúrubaðferð var komið að því að klæða sig aðeins upp og rölta yfir í Hlöðuna en þar átti ég pantað borð sem var nú eins gott, því það var margt um manninn þetta laugardagskvöld og færri komust að en vildu á þeim tímanum og komu því síðar en á meðan stóðu þau sig snilldainnar vel, kokkurinn og hún Melinda sem var þarna að þjóna til borðs, taka á móti pöntunum, og taka á móti gestum, hún sveif þarna um blessunin og stóð sig ekkert smá vel og hún átti svo sannarlega hrós skilið sem ég gaf henni frá mínum hjartarótum.

Ég ákvað að panta mér fisk dagsins þetta kvöldið þar sem ég hafði fengið mér kjöt kvöldið áður og þetta kvöld var Langa á boðstólunum, fisktegund sem ég hreinlega er alltaf að elska meira og meira, maturinn var himneskur og ég naut þess að snæða hann þarna í þessu líka fallega umhverfi. 
Stutt var svo að rölta aftur yfir í Ömmuhús en myrkrið það var alveg magnað að sjá varla nokkuð framfyrir sig og horfa upp til himins, reyndar ekki stjörnubjart þetta kvöldið en ansi dimmt. Það var síðan ansi ljúft að hjúfra sig undir sængina og fyllast þakklæti fyrir þenna líka dásamlega dag.
Áður en ég svo kvaddi þennan fallega stað, fór ég í morgunverðar hlaðborð og naut vel þess sem boðið var upp á, gott út í daginn svona rétt fyrir réttirnar sem ég var að fara í.
Rétt utan við Stykkishólm skellti ég mér svo í réttir í mitt annað sinn á ævi minni, hinar voru fyrir ca.45.árum síðan. Arnarhólsrétt heitir hún og svo skellti ég mér í kaffi og kjötsúpu hjá Kvenfélaginu Björk í Félagsheimilinu Skjöldur. Virkilega skemmtileg tilbreyting í lífið sem ég mæli með að allir prufi og stefni klárlega að ári, bara spurning hvert þá.
Hver er svo sagan þeirra, jú hún er ansi mögnuð.
Félagsbúið Miðhraun varð 30 ára, árið 2018 svo að í dag eru þau 38 ára en þá fluttu þau hjónin Bryndís og eiginmaður hennar Sigurður að Miðhrauni, sauðfjárbúi sem hefur verið rekið sem fjölskyldubú sex kynslóða frá árinu 1850. Þar byrjaði draumur þeirra um sveitalífið og í gegnum árin reyndu þau fyrir sér í mörgu en farsælast var hjá þeim að reka fiskþurrkunarfyrirtæki sem réði 40 manns í vinnu frá 1997 til 2016 en þá gerðist sá hörmulegi atburður að verksmiðjan brann. Þau létu þó ekki deigan síga og í dag reka þau ásamt börnum sínum þessa líka dásamlegu ferðaþjónustu sem átti í upphafi að vera bara sem bráðabirgðalausn en varð að blómlegu fjölskyldufyrirtæki.
Ég las söguna þeirra á síðunni og hún snart mig verulega og mikið sem þetta er fallega og vel sett upp hjá þeim í máli og myndum, svo magnað að ég gæti ekki haft það eftir, svo ég set hérna inn link beint á sögu þeirra hjóna Bryndísar, Sigurðar og fjölskyldu þeirra. Mæli innilega með að þið gefið ykkur tíma til að lesa um þessa mögnuðu fjölskuldu sem ég tek þó fram að ég þekki ekki neitt en maður fékk smá innlit inn í þeirra mögnuðu vegferð og hvar þau eru í dag. Lesið meira um það hérna.
Falinn demantur á Snæfellsnesi
Gisting, vellíðan og matur úr héraði eru einkunarorð þeirra.
Gamall sveitabær með langa sögu sem nú hefur öðlast nýtt hlutverk sem gististaður með notaleg herbergi t.d. í Ömmuhúsi, sumarhús, íbúðir og líka stærri hús með fallegu útsýni til fjalla ramma þau svo fallega inn. Hraunböðin í náttúrunni og lindarvatns þar á bakvið sem streymir undan hrauninu og svo er þetta toppað með veitingastaðnum í Hlöðunni sem er algjörleg toppstaður að mínu mati, umhverfið, maturinn og þjónustan. Þetta er að mínu mati, tveggja nátta stopp til að njóta í botn og nota þá daginn til skoðunarferða um Snæfellsnesið.
Miðhraun - Lava Resort er fjölskyldurekinn ferðaþjónusta og sögulegt sveitabýli sem er staðsett við Miðhraun 2 á sunnanverðu Snæfellsnesi (í Eyja- og Miklaholtshreppi) eða í um það bil 1.5 tíma fjarlægð frá Reykjavík.
Heimasíðuna þeirra má finna með því að smella beint hérna
Texti og myndir:
Ingunn Mjöll Sigurðardóttir/Islandsmjoll
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
October 31, 2026
Hraunsnef í Borgarfirði!
Ég gisti ég á Hraunsnefi í Borgarfirðinum fyrstu nóttina í löngu helgarfríi sem ég tók mér frá höfuðborginn en þangað hafði ég komið og gist með vinkonu fyrir örugglega meira en 10.árum síðan og átti góðar minningar þaðan.
May 31, 2026
Pastaskóli Grazie Trattoria!
Fyrir ári síðan fórum við vinkonurnar saman í Pizzaskólann hjá Grazie Trattoria og nú var komið að því að fara og læra að gera heimagert pasta. Ég mæli 100% með hvorutveggja beint frá mínum hjartarótum.
December 21, 2025
Námskeið Salt eldhússins!
Þegar maður er búin að fylgjast með spennandi námskeiðum hjá Salt eldhúsinu í þó nokkurn tíma þá freistast maður á endanum og maður getur alltaf lært eitthvað nýtt. Ég valdi að fara á námskeiðið í Jólahlaðborðinu hjá þeim þar sem við settum saman 10 rétta jólahlaðborð.