Pastaskóli Grazie Trattoria!

May 31, 2026

Pastaskóli Grazie Trattoria!

Pastaskóli Grazie Trattoria!
Fyrir ári síðan (2025) fórum við vinkonurnar saman í Pizzaskólann hjá Grazie Trattoria og nú var komið að því að fara og læra að gera heimagert pasta. Ég mæli 100% með hvorutveggja beint frá mínum hjartarótum. Þetta var svo gaman og líka svo einstök vinkonustund.

Eins og hvað það er gott að fara út að borða og láta dekra við sig þá er bara eitthvað annað sem gerist þegar maður hefur gaman af því að elda og gera þetta sjálf/ur og ekki verra ef í góðum félagsskap fjölskyldu og vina. 

Að kaupa sér tilbúið pasta út í búð er gott og blessað, þurrkað, tilbúið, allsskonar tegundir en þó allt úr sömu undirstöðunni. Það er jú betra þegar maður kaupir ferskt pasta út í búð en það verður að segjast að það slær öllu út þegar maður gerir það sjálfur frá grunni og ég hefði aldrei trúað því sjálf hvað þetta er einfalt, já miklu einfaldra en maður heldur og hráefnið í grunninn eingöngu 2, eitthvað sem allir eiga að öllu jafna.

En til að sjá hvað þetta er og getur verið einfalt þá vil ég benda ykkur á þetta flotta námskeið sem við fórum á vinkonurnar og nutum í botn, bæði að útbúa pastað sjálft, fá alla vitneskjuna um upprunan á pastanu og hugmyndir á því hvað hægt er að gera og ég vil því alls ekki uppljóstra því hérna og taka frá námskeiðinu þeirra, plús þetta er líka bara svona notaleg stund að njóta með sínum bestu og maturinn sem var svo eldaður af kokkum staðarins var æðislegur, vel út látinn og það var meira að segja boðið upp á að taka með sér heim það eftir var sem notið var daginn eftir. 

Takk fyrir dásamlegt námskeið!
P.S. Ég greiddi það algjörlega sjálf og bauð vinkonu minni í afmælistrít.

Venize pastaskólinn er haldinn í samstarfi við Daníel en hann hefur starfað á nokkrum af bestu pastastöðum heims.

Námskeiðið var byggt upp á sýninkennslu þar sem við lærðum að gera alvöru pastadeig og ítalska pastasósu ásamt samsetningu áleggs, osta og krydda. 

Hér að neðan má svo sjá myndaseríu af því hvernig námskeiðið fór fram, svona í stuttu máli, það verður eitthvað að vera eftir fyrir ykkur sjálf að upplifa. Námskeiðið tekur um tvo og hálfan tíma og endar svo á þessari ljúffengu máltíð ásamt glasi af léttvíni, bjór eða gosi og slatta af góðu skapi.


Spennandi að hefjast handa

Allt tilbúið fyrir alla

Hérna erum við búin að fá kennsluna á pastavélina og útbúa alveg hreint dásamleg Ravíoli með fyllingu að þeirra hætti sem var algjört lostæti.

Þá var komið að því að útbúa Tagliatelle og þar fengum við kennsluna á því líka, bæði handgert og á pastavélinni, sem var í boði að kaupa hjá þeim, snilld fyrir þá sem ekki eiga allt, ennþá!

Á meðan kokkarnir síðan elduðu gómsæta máltíð úr því sem við öll vorum búin að útbúa fengum við þetta dásamlega hvítlauksbrauð svona í forrétt til að kítla bragðlaukana.

Og svo kom veislan á borðið, tveggja rétta og algjört lostæti hvorutveggja.

Daníel frá Feneyjum sá um að leiða okkur um söguna á bakvið pastagerðina.


Texti & myndir

Ingunn Mjöll/Islandsmjoll




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Blogg & greinar!

Námskeið Salt eldhússins!
Námskeið Salt eldhússins!

December 21, 2025

Námskeið Salt eldhússins!
Þegar maður er búin að fylgjast með spennandi námskeiðum hjá Salt eldhúsinu í þó nokkurn tíma þá freistast maður á endanum og maður getur alltaf lært eitthvað nýtt. Ég valdi  að fara á námskeiðið í Jólahlaðborðinu hjá þeim þar sem við settum saman 10 rétta jólahlaðborð.

Halda áfram að lesa

Fiðrildi.is
Fiðrildi.is

December 10, 2025

Fiðrildi.is - Ásdís Guðmundsdóttir
Fiðrildaferðir er ferðaskrifstofa stofnuð árið 2025 af Ásdísi þar sem hún leggur mikla áherslu á samfélags- og menningartengda ferðamennsku. Þetta hugtak vísar til ferðaþjónustu sem er þróuð af heimamönnum í samstarfi við samfélög á svæðinu og þar sem áhersla er á að virðisaukinn verði eftir á svæðinu.

Halda áfram að lesa

Slow Food markaður í  Flóru!
Slow Food markaður í Flóru!

November 23, 2025

Slow Food markaður í  Flóru!
Slow Food heldur reglulega markaði hér og þar og hérna voru þau með markað í Flóru-grasagarðinum þann 27.september. Ég elska að líta á allsskonar matartengda markaði enda hefur matur og allt sem honum tengist verið eitt af mínum aðal áhugamálum frá unga aldri.

Halda áfram að lesa