Hraunsnef!

October 31, 2026

Hraunsnef!

Hraunsnef í Borgarfirði!
Ég gisti ég á Hraunsnefi í Borgarfirðinum fyrstu nóttina í löngu helgarfríi sem ég tók mér frá höfuðborginn en þangað hafði ég komið og gist með vinkonu fyrir örugglega meira en 10.árum síðan og átti góðar minningar þaðan og alltaf langað að fara aftur.

Það er eitthvað við blessuð dýrin sem ég bara elska að mynda.

Þar hafa orðið miklar breytingar á og svæðið hefur stækkað til muna og núna eru komin hjá þeim skemmtileg náttúruböð eins og víða og eru orðin gríðarlega vinsæl núna.

Þegar ég var mætt á staðinn um þrjú leytið þá tjékkaði ég mig inn og kom mér fyrir og rölti svo út með myndavélarnar og myndaði bæði dýrin og umhverfið.

Fyrir áhugasama að skoða meira af ljósmyndum þá eru þið velkomin að skoða á ljósmyndasíðunni minni á feis-bókinni hérna


Það var gott að vera með stígvélin sín meðferðis, svona upp á rigningu að gera og svo fengu þau bara að þorna þarna yfir nóttina sem varð að þessari líka skemmtilegu mynd.

Að því loknu skellti ég mér á "GLEÐISTUND" þar sem ég naut þess að sitja og njóta ljúffengra og ólíkra drykkja að hætti hússins, eftir það skellti ég mér í náttúruböðin þar sem ég náði að slaka all svakalega á, enda sveitakyrrðin að umlykja mig, það varla heyrðist í neinum og dýrin sváfu, þvílíka sælan.

Dásamlegt svæði og fögur fjallasýnin.

Þá var komið að því að klæða sig aðeins upp, því jú, ég var þarna komin til að njóta og dekra við sjálfa mig frá A-Ö og ég mæli með að þið gerið það líka.


Ég var búin að panta borð og rölti yfir þessi 10 skref frá mínu herbergi. Það var nokkuð af fólki þarna fyrir og ég kom mér fyrir út við gluggan til að njóta útsýnis. Þjóninn kom og tók við pöntun minni og ég skellti mér á Nautaþynnur sem voru þunnt skorið nautakjöt með frönskum, bearnaise sósu og laukhringjum og fékk mér eitt rauðvínsglas með svona til hátíðarbrigða. Ég rétt leit í kringum mig og spjallaði lítilega við fólkið á næsta borði sem sagðist koma þarna reglulega á ferðum sínum norður en að þau hefðu aldrei gist, ég mælti með gistingu við þau næst og ég var varla búin að bíða í 10.mínútur þá var maturinn kominn og vá vá vá, hvað þetta var gott.

Maturinn á Hraunsnefi er og hefur verið margrómaður og ég tek heilshugar undir það. 


Ég naut þess svo að hvíla mig vel og tók smá andlitsdekur og sjónvarpsgláp áður en ég datt út eftir dásamlegan dag.  Það var líka alveg dásmlegt að geta fengið sér gott kaffi strax um morgunin en sjá má þessa líka fínu kaffikönnu þarna í horninu og kaffi í boði húsins.

Morgunverða salurinn einstaklega fallegur, úrvalið var mjög fínt.

Séð yfir innri veitingastaðinn

Ég endaði svo dvöl mína á ljúffengu morgunverðarhlaðborði og ljúffengum kaffibolla áður en ég hélt áfram á vit nýrra ævintýra og yfir á næsta dvalarstað. 


Smá bland af allsskonar á minn disk

Útsýnið var ekki að verri endanum og örugglega alveg dásamlegt að sitja þarna úti á góðviðrisdögum. 


Þegar þið eruð að keyra Borgarfjörðinn á norðurleið, þá hreinlega getið þið ekki misst af þessum stað, fátt eins áberandi eins og þetta stóra hlið.

Það er að mínu mati fátt dásamlegra en að ferðast um landið okkar og njóta þess, margt hefur breyst og bæst við, bæði í gististöðum, dásamlegum veitingastöðum með hráefni beint frá býli og allsskins afþreyingu víða.

Samantekt, myndir og texti:
Ingunn Mjöll Sigurðardóttir/Islandsmjoll

Ath.Ekki samstarf, bara mín eigin upplifun á notalegri dvöl á fallegum stað.

Smávegilegar upplýsingar sem ég fann á netinu um Hraunsnef:
Hraunsnef Sveitahótel er fjölskyldurekið sveitahótel, veitingastaður og býli sem er staðsett í Norðurárdal í Borgarbyggð, við þjóðveg 1 (um 110 km frá Reykjavík).

Boðið er upp á bæði herbergi og bústaði. Öll herbergin eru með sérinngang, sérbaðherbergi.

Veitingastaðurinn leggur áherslu á staðbundið hráefni og heimaalið kjöt beint frá býli.

Náttúruböðin og afþreying:
Náttúrubað, heitir pottar og gufubað. 

Og svo finnið þið blessaða dýralífið á hlaðinu, stutt er svo í margar af perlum á Vesturlandi.

Heimasíðuna þeirra má finna beint hérna Hraunsnef




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Blogg & greinar!

Pastaskóli Grazie Trattoria!
Pastaskóli Grazie Trattoria!

May 31, 2026

Pastaskóli Grazie Trattoria!
Fyrir ári síðan fórum við vinkonurnar saman í Pizzaskólann hjá Grazie Trattoria og nú var komið að því að fara og læra að gera heimagert pasta. Ég mæli 100% með hvorutveggja beint frá mínum hjartarótum.

Halda áfram að lesa

Námskeið Salt eldhússins!
Námskeið Salt eldhússins!

December 21, 2025

Námskeið Salt eldhússins!
Þegar maður er búin að fylgjast með spennandi námskeiðum hjá Salt eldhúsinu í þó nokkurn tíma þá freistast maður á endanum og maður getur alltaf lært eitthvað nýtt. Ég valdi  að fara á námskeiðið í Jólahlaðborðinu hjá þeim þar sem við settum saman 10 rétta jólahlaðborð.

Halda áfram að lesa

Fiðrildi.is
Fiðrildi.is

December 10, 2025

Fiðrildi.is - Ásdís Guðmundsdóttir
Fiðrildaferðir er ferðaskrifstofa stofnuð árið 2025 af Ásdísi þar sem hún leggur mikla áherslu á samfélags- og menningartengda ferðamennsku. Þetta hugtak vísar til ferðaþjónustu sem er þróuð af heimamönnum í samstarfi við samfélög á svæðinu og þar sem áhersla er á að virðisaukinn verði eftir á svæðinu.

Halda áfram að lesa