Hérna má sjá hann Júlla The Tourguide, Júlíus Freyr Theodórsson leiðsögumaður af húð og hári og segir líka þetta skemmtilega frá og það var virkilega gaman að fylgjast með honum á miðlunum á tímum sem ekki mátti hittast en þið finnið hann á feisbókinni hérna og getið fylgt honum og bent öðrum á hann.
Síðan var það hún Soffía hjá Hvalaskoðunarferðir á Hauganesi að kynna elsta hvalaskoðunar fyrirtæki landsins, aðeins upptekin þegar ég smellti af þeim myndinni.
Þar er boðið upp á ferðir í tvemur klassískum íslenskum eikarbátum. Í 99% ferða þeirra má sjá hnúfubaka, hrefnur, hnísur, háhyrninga og steypireyðar og voru þeir í ca 25.mínútnar fjarlægð frá Hauganesi. Á Hauganesi er margvísleg önnur þjónusta í boði eins og veitingastaðurinn Bacalo og heitu pottarnir sem hafa verið afar vinsælir en einnig tjaldsvæði og gisting.
Hérna er hægt að skoða heimasíðuna þeirra.Hérna er hún
Ólöf Ýrr Atladóttir að kynna
Sóti Summits fyrirtækið sitt
Sólgarð í Fljótunum sem hún og eiginmaður hennar
Arnar Þór Árnason keyptu haustið 2015. Náttúra Fljótanna og útvistarmöguleikar eru ansi margir og skemmtilegir en ásamt því að reka hótel þá reka þau líka ferðaskrifstofu og bjóða upp á allsskonar útivistarferðir, gistimöguleika ofl ansi áhugavert. Allar upplýsingar um þær má finna
hérna
Feisbókarsíðan þeirraHeimasíðan þeirraSögusetrið1238/The Battle Of IcelandFreyja Rut Emilsdóttir fræmkvæmdastjóri kynnti þessa áhugaverðu sýningu sem staðsett er á Sauðárkróki, nánar tiltekið að Aðalgötu 21. Það verður gaman að heimasækja það og fá sér í leiðinni eitthvað gott að borða á
Grána Bistro.
Árið er 1238
Sögusetrið 1238 er gagnvirk og alltumlykjandi sýning sem færir þig mun nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar. Með hjálp nýjustu tækni í miðlun og sýndarveruleika bjóðum við þér að taka þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar og beinlínis stíga inn í sögu Sturlungaaldar.
Heimasíðan þeirra Feisbókarsíðan þeirra
Grána Bistro síðan
Guðmundur Þór Birgisson framkvæmdarstjóri fyrir Jarðböðin á Mývatni
Hann kynnti böðin og nýjungar í uppbyggingu og stækkun á böðunum sem eiga að vera tilbúin árið 2026. Verður spennandi að koma við og sjá. Ég hef aðeins einu sinni farið í böðin og líkaði vel. Skemmtileg tilbreyting í ferðalagi mínu um landið það árið.
Jarðböðin eru fyrir alla sem vilja njóta þess að vera í beinni snertingu við náttúruna, slaka á og endurnæra líkama og sál. Boðið er upp á náttúruleg gufuböð, baðlón með heitu hveravatni og heitan pott. Það er gott að gefa sér góðan tíma og slaka vel á þarna. Vera og njóta.
Heimasíðu Jarðbaðanna má finna hérna
Slakaðu á - Njóttu - Upplifðu
Hérna eru þeir
Stefán og Daníel að kynna
Dalasetur sem staðsett er í
Unadal í Skagafirðinum, skammt frá Hófsós eða tæplega 4 kílómetra frá Hofsós.
Dalasetur er kyrrlátur og friðsæll staður í Unadal sem er tilvalinn fyrir alla þá sem vilja njóta sín í fallegu og björtu bjálkahúsi, úti í náttúrunni hvort sem það er að fara í fjallgöngu, frisbígólf, saunu eða bara slaka á í heitu náttúrulauginni sem liggur við árbakkann.
Þeir Daníel Þórarinsson og Stefán Óskar Hólmarsson eru þeir sem eiga og reka þennan stað og er markmið þeirra að þú njótir þín sem allra best, náir góðri afslöppun til að fullhlaða batteríin.
Skemmtilegu einkunnar orðin þeirra eru...
Komdu sem gestur og farðu sem vinur.
Mér finnst þetta einstaklega spennandi hjá þeim og það sem vakti svo skemmtilega athygli mína voru eyrnalokkarnir sem annar þeirra var með, bolli og undirskál, eitthvað sem ég væri klárlega til í að eiga sett af.
Vá hvað þetta er glæsilegt hjá þeim, það er hugsað yfir öllu! Skoðið myndir og videó hér
Feisbókarsíðan þeirra
Heimasíðan þeirra
Ragnar F.Olsen stóð vaktina fyrir
Arctic hótels á Mannamót 2025
Arctic Hotels rekur
Hótel Tindastóll & Annex, 550 Guesthouse og sumarhótel Mikligarðs. Öll eru þau staðsett á
Sauðárkróki.
Feisbókar síðuna þeirra má finna
hérnaSigrún og Evelyn Ýr
Sigrún Helga Indriðadóttir hjá Rúnalist Gallerí á Stórhól Skagafirði kynnti það sem þau hafa upp á að bjóða eins og fallegt handverk úr íslensku náttúrulegu hráefni, sælkeramatvörur beint frá býli ofl sem þau bjóða upp á en hægt er að koma og heimsækja þau líka og hitta íslensku landnámsgeitina þeirra og önnur dýr á bænum, þetta allt heillar mig.
Ég hef hitt hana nokkrum sinnum áður en aldrei á heimavelli, svo það er komið á heimsóknarlistann minn. Ég hef líka verslað hjá henni kjötvörur beint af býli og skellti í eina uppskrift og bætti svo við hennar uppskriftum með.
Uppskrift af KiðlingahryggHeimasíðan þeirraFeisbókarsíðan þeirraEvelyn Ýr Kuhne kynnti fyrir okkur hvað fjölskyldan býður upp á en þau eiga og reka ferðaþjónustu og hestabúgarð á
Lýtingsstaðir í Skagafirðinum. Þar ríkir ástríða fyrir sveitalífinu og íslensks menningararfs og má þar nefna íslenska hestinn, íslenska fjárhundinn og íslensk rofhús. Fjölskyldna samanstendur af honum Sveini Guðmundssyni sem er fæddur og uppalinn á Lýtingsstöðum, eiginkonu hans Evelyn Ýr sem er uppalinn í Þýskalandi og hefur búið hér frá árinu 1995 og svo syni þeirra Júlíusi Guðna.
Staður sem kominn er á heimsóknarlistann minn en þau bjóða upp á skemmtilega Sveitaheimsókn fyrir fjölskylduna, hestaferðir, gistingu í gestahúsunum þeirra, skoðun á torfhesthúsinu og að lokum nýuppsetta sýningu um íslenska fjárhundinn vorið 2025.
Heimasíðan þeirraFeisbókarsíðan þeirraHérna eru þær mæðgurnar
Þórhalla Bergey og Ólöf Hallgrímsdóttir einn af eigendum
Vogafjóss í Mývatnssveit.
Vogabú hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í um 120 ár.
Kýr og kindur voru uppistaðan til að byrja með kemur fram á heimasíðu þeirra, ásamt nokkrum hænum, tveimur hestum og hundi. Það hefur mikið breyst síðan þá. Því árið 1999 var byggt upp nýtt fjós og eru nú um 40 kýr og nautgripir í fjósinu.
Þar við bættist svo Kaffihúsið Vogafjós sem var svo byggt innan við fjósið en þar er boðið upp á ljúffengar veitingar. Í dag reka þau glæsilegt veitingahús þar sem hægt er að fá góðan mat með úrvarlshráefni frá Norðurlandi.
Hægt að sjá kýrnar mjólkaðar og jafnvel bragða á glænýrri mjólk beint úr spenanum. Hversu dásamlegt er það.
Árið 2005 bættu þau sem enn betur um og reistu gistihús við til viðbótar við Vogafjós. Gistihúsin eru falleg bjálkahús, herbergin rúmgóð og öll með sérbaðherbergi.
Heimasíða VogafjósFeisbókarsíðan þeirraHérna er hún
Úlla Árdal að kynna það sem er í boði á
Visit Mývatn og nágrenni.
Hægt er að skoða allt um það
hérna
Og svo má finna þau hérna á
feisbókinniSvava Hlín Arnarsdóttir kynnti fjölskyldurekna fyrirtækið
Friends of Moby Dick sem staðsetta er á
Húsavík.
Moby Dick er lítið fjölskyldurekið fyrirtæki, reyndar eru þau það minnsta á Húsavík sem býður upp á hvalaskoðunarferðir en með áratuga reynslu og ástríðu þar sem Arnar yfirskipstjóri og fyrsti skipstjórinn sem sigldi í svoleiðs ferðum á Húsavík. Þið finnið allt um þau
hérnaHenni við hlið var svo hann Joaquim Navarro sem er hótelstjórinn á Fosshótelinu á Mývatni. Þar gisti ég í hringferð minni árið 2020 eða 2021 á þeim skrítnu tímum. Fallegt hótel á fallegum stað sem ég náði ekki að njóta sem skildi þá en koma tímar, koma ráð.
Finna má Fosshótel Mývatni
hérna
Listakot Dóru!
Listakonan Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir hefur rekið Listakot Dóru á fjölmörgum stöðum en hefur nú flutt á æskustöðvar sínar í að Vatndalshólum þar sem hún byggði sýningarsal og vinnuaðstöðu. Listakot Dóru er staðsett um 2 kílómetra inn í Vatnsdal að vestan verðu. Ég mun heimsækja hana næst þegar ég leið um.
Dóra málar kerti við öll tækifæri, hún málar íslenskt landslag og kort, heldur sýningar og vinnustofur og er að fara bjóða upp á gönguferðir með leiðsögn í sumar sem verða auglýstar frekar á feisbókarsíðunni hennar, fylgist því með því hérna.
Þeir
Björn Þór Kristjánsson eigandi og Jesus Briceno yfirkokkurinn á staðnum buðu upp á léttar veitingar frá
B&S Restaurant á Blöndósi og kynntu veitingastaðinn í leiðinni. Staðurinn er í alfaraleið á þjóðvegi 1 og margir sem leggja leið sína þangað í stoppi á milli Reykjavíkur og Akureyri, nú eða öfugt, Akureyri - Reykjavík.
Ég hef sjálf ekki stoppað þar enn sem komið er svo ég get ekki lagt mat mitt á hann enn sem komið er en stefni á að stoppa þar í næstu ferð norður og deili því þá með ykkur.
Þið finnið síðuna þeirra á feisbók
hérnaHérna er hún Signý Jónasdóttir að kynna Norðursiglingu/North Sailing en ég hitti hana líka
á Mannamót 2024. Hún er með aðsetur á Árskógssandi þar sem nýlega var byrjað að sigla frá í staðinn fyrir Hjalteyri sem sem var áður en aðalskrifstofan er á Húsavík, höfuðborg hvalanna á Íslandi.
Hvalaskoðunarferðir, siglingar, ævintýraferðir, hvalaskoðun á seglskútu, sigling út í Lundey þar sem má sjá fjölskrúðugt fuglalíf þar sem þúsundir Lunda dvelja yfir sumartíman, sigling við heimskausbaug, tveggja nátta ferð eða sigling út í Flatey á Skjálfanda, ein af draumaferðunum sem mig langar mikið til að fara í en þar er líka mikil fuglaparadís. Þangað er líka hægt að fara og gista í 2 húsum sem þar eru í útleigu, fá leiðsögn, kokk til að koma og elda ofl ofl en byrjum á Hvalaskoðunarferðinni, gjafabréfinu sem ég er búin að eiga í mörg ár en aldrei komist í, spurning hvaða ár það verður en það er ennþá á stefnuskránni minni.Þær
Silfá Sjöfn Árnadóttir og Herdís Þ.Jakobsdóttir framkvæmdastjóri hjá
Kayakar.is kynntu ferðir sem eru í boði hjá þeim en fyrirtækið er staðsett á
Skagaströnd.Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni þeirra
hérnaOg svo á feisbókinni
hérnaÖrvar Birkir Eiríksson framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands og
Erla kynntu Selasetrið sem staðsett er á Hvammstanga. Ég á alveg eftir að skoða það enda er af ansi mörgu að taka á okkar Litla/Stóra landi þegar kemur að söfnum og öðrum fróleik. En ég er búin að sjá og mynda selina sem eru þarna við Illugastaði
allt árið.
Heimasíða Selasetursins á Íslandi er
hérnaFeisbókarsíðan þeirra
hérnaÞú finnur Islandsmjoll líka á InstagramMarkaðsstofur landshlutanna má finna á feisbókinni hér
Mig langar að lokum til að hrósa öllum þeim sem bjóða upp á íslensku á heimasíðunum sínum en það er eitthvað sem mér persónulega vera og ætti að vera algjört skilyrði að gera með fyrirtæki á Íslandi. Ég heyrði að margir voru að fara í þá vinnu en því miður ekki allir og í sumum tilfellum var boðið upp á t.d. 2-5 tungumál og ekki eitt einasta þeirra íslensk! Á Íslandi ætti að sjálfsögðu að vera fyrsta mál í boði íslenska og ég veit það flest allir eru sammála því.
Óskandi að það verði bót á.