June 08, 2026
Satey kartöflugratín!
Óhefðbundið kartöflugratín sem var alveg rosalega gott og hentar vel með fisk, kjúklingaréttum, indverskum og lambakjöti. Einstaklega einfaldur og fljótlegur.
1.krukka af Satey sósu (fæst í Bónus t.d.)
8.kartöflur meðalstórar
1/2 rauðlaukur
1 peli af Coconut milk
Skerið kartöflurnar og laukinn í sneiðar og raðið í eldfast mót
Hrærið saman sósunni og kókosmjólk og hellið yfir kartöflurnar, stráið rifnum osti yfir og setjið inn í ofn á 180°c í um 35-40 mínútur. Ég strái ostinum oft ekki ofan á fyrr en síðustu 10.mínúturnar

Skreytið að vild
Að þessu sinni var ég með lax kryddaðan með sítrónupipar frá By Artos og ferskt salat
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
February 10, 2025 2 Athugasemdir
Sætkartöflusalat!
Bjó til líka þetta æðislega sætkartöflusalat sem hentaði einstaklega bæði með rauðsprettunni sem ég var með og eins bleikjunni daginn eftir. Ég gerði mína eigin útgáfu af salatinu sem hentar fyrir 2 eða í tvær máltíðar fyrir einn. Læt þau bæði fylgja hérna með og þið veljið hvort hentar ykkur betur.
January 24, 2025
Kartöflugratín!
Ég bjó til þetta kartöflugratín á gamlársdag 2024 og bar fram með Túnfisksteikinni og eins og alltaf einstaklega gott með smá tvisti.
December 06, 2024