June 28, 2026
Bökuð kartafla með fyllingu!
Hérna er ég með bakaða kartöflu fyllta með kotasælu með hvítlauk og pipar, beikoni og blaðlauk, toppaða með bræddum osti. Hérna er bara ein á ferð þar sem ég var að prufa þessa útgáfu og mér fannst hún æðisleg og næst ætla ég að prufa aðra útfærslu og mun deila henni hérna með ykkur líka.
Setjið bökunarkartöflu í eldfast form og setjið gróft salt eða saltflögur í botninn og ofan á kartöfluna og bakið hana í um 30.mínútur á hvorri hlið, þar að segja ef hún er ekki forsoðin þá þarf töluvert skemmri tíma.

Hrærið saman Kotasælunni við steikta beikonið og blaðlaukinn. Ég steikti um 2 beikonsneiðar í þessa einu kartöflu og notaði um 3-4 msk af kotasælunni og blaðlaukinn skar ég niður svona 5 sneiðar. Skilið örlítið eftir af beikoninu og blaðlauknum til að skreyta með ef vill.


Opnið kartöfluna og kryddið hana létt með salt og pipar úr kvörn
Skellið fyllingunni ofan í kartöfluna

Rifnum ost yfir og inn í ofn þar til osturinn er bráðinn

Setjið kartöfluna á disk og skreytið

Að þessu sinni var ég með þessa í kvöldmat og ég var alveg þægilega södd af henni en hún er líka einstaklega flott sem meðlæti með ljúffengri steik, fisk eða kjúkling.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
June 08, 2026
Satey kartöflugratín!
Óhefðbundið kartöflugratín sem var alveg rosalega gott og hentar vel með fisk, kjúklingaréttum, indverskum og lambakjöti. Einstaklega einfaldur og fljótlegur.
February 10, 2025 2 Athugasemdir
Sætkartöflusalat!
Bjó til líka þetta æðislega sætkartöflusalat sem hentaði einstaklega bæði með rauðsprettunni sem ég var með og eins bleikjunni daginn eftir. Ég gerði mína eigin útgáfu af salatinu sem hentar fyrir 2 eða í tvær máltíðar fyrir einn. Læt þau bæði fylgja hérna með og þið veljið hvort hentar ykkur betur.
January 24, 2025
Kartöflugratín!
Ég bjó til þetta kartöflugratín á gamlársdag 2024 og bar fram með Túnfisksteikinni og eins og alltaf einstaklega gott með smá tvisti.