April 21, 2024
Kartöflusalat með Mango Chutney
Hérna er skemmtileg útfærsla af kartöflu salati með Mango Chutney frá Patak's, virkilega gott kartöflusalat, ekta sælkera að mínu mati og gott með öllum mat. Afar einfalt.
500 gr kartöflur
Sjóðið kartöflurnar í um 18-20 mín og látið kólna, ég skrældi þær áður.
1 laukur, skorin smátt niður
1/2 krukka, ca 150 gr, eða tæplega af Mango Chutney frá Patak's
3 stk sýrðar agúrkur heilar, skerið þær í litla bita
3-4 msk af mæjónesi..jafnvel meira, ég notaði um 6-8 msk af Heinz majonesi
Dásamlegt ef deilt er áfram, hjartans þakkir fyrir það.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
June 28, 2024
April 09, 2024
April 04, 2024