May 03, 2026
Kjúklinganochos!
Einn af þessum réttum sem alltaf eru sígildir og góðir, Minnsta mál er að skipta út kjúkling fyrir hakk t.d. ef maður vill breyta til.

1 poki Nachos flögur
2 kjúklingabringur
2 msk taco krydd
200 gr rifinn ostur
2 tómatar smátt skornir eða litlir kokteiltómatar, ca 6-8 stk
1 krukka/dós svartar ólífur
Avacado (lárpera) skorin í teninga
Vorlaukur, smátt skorinn niður
Kóríander
Sýrður rjómi
Límóna
Skerið niður tómata og olívurnar

Kryddið kjúklingabringurnar með taco kryddinu og steikið eða grillið þar til þær eru eldaðar í gegn og skerið svo í þunnar sneiðar. Setjið helminginn af nachos flögunum í botninn á eldföstu formi og helminginn af ostinum þar ofan á og svo hluta af kjúklinginum, tómatana og ólífurnar þar yfir. Bætið svo restinni af flögunum ofan á ásamt restinni af kjúklingunum, ólífunum, tómötunum og ostinum. 

Bakið við 180°c í um 15-20 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður. 
Takið þá úr ofninum og skreytið með sýrðum rjóma, acacado teningunum, tómötum, kóríander og kreystið límónusafa yfir allt. 
Berið fram með salsa sósu og sýrðum rjóma og njótið vel.
Læt einn einfaldann fylgja hérna með.
Doritos, salsasósa, rjómaostur og rifinn ostur, einstaklega gott.

Gott líka með vefjum sem meðlæti.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
April 05, 2026
Grillaður kjúklingur/reyktur!
Hérna var ég með tvennskonar kjúklinga í matarboði fjölskyldunnar, annarsvegar venjulegan en hins vegar reyktan og við elskum bæði. Afgangana nýtti ég svo vel og deili því hérna með ykkur sem hugmyndum hvernig hægt er að nýta allt upp til agna eða því sem næst.
November 01, 2025
Butter Chicken!
Ég fékk smá glaðning frá ferðaskrifstofunni Fiðrildi.is sem hún Ásdís Guðmundsdóttir á og rekur, sem var skemmtileg uppskrifta bók frá Indlandi og vel valin krydd frá samstarfsaðila þeirra úti, henni Jenny D'Souza.
October 27, 2025
Kjúklingaleggir í pasta-rjómasósu!
Hérna er á ferðinni einn afar einfaldur og góður kjúklingaréttur þar sem ég nota kjúklingaleggi en hæglega er hægt að vera með aðra kjúklingabita í honum, allt eftir smekk. Örfá hráefni og hæglega hægt að skipta út sósunni t.d. fyrir aðra sambærilega sem þið eigið hugsanlega til í skúffunni ykkar.