April 05, 2026
Grillaður kjúklingur/reyktur!
Hérna var ég með tvennskonar kjúklinga í matarboði fjölskyldunnar, annarsvegar venjulegan en hins vegar reyktan og við elskum bæði. Afgangana nýtti ég svo vel og deili því hérna með ykkur sem hugmyndum hvernig hægt er að nýta allt upp til agna eða því sem næst.

Afgangarnir voru svo vel nýttir, sjá hérna í myndum og máli fyrir neðan.
Hagsýna húsmóðirin mælir með!
Kjúklingana geymdi ég yfir nóttina í álpappír en oft er ég búin að brytja þá niður og setja í lokuð ílát.
Brytjið þá svo niður, hvorn fyrir sig

Hérna er ég með reykta kjúklinginn
Með honum var ég með þessa Satey sósu, (fæst í Bónus), ananasdós, papriku og einn rauðlauk og 1 hrísgrjónapoka (soðin)
Skerið rauðlaukinn í sneiðar og steikið á pönnu upp úr smjörlíki/smjöri/olíu eftir ykkar eigin vali.
Hellið sósunni saman við
Hrærið vel saman
Bætið svo saman við hrísgrjónunum, paprikunni og ananasinum
Hérna er ég með 8 stórar vefjur (Tortillur) og svo var ég með pakka af þeim allra minnstu líka til að loka með, sjá myndir
Setjið ost á botninn, svo fyllinguna, Doritos og ost aftur
Setjið litlu tortilluna ofan á fyllinguna
Og lokið henni svo á alla kannta
Pakkið svo inn einni og einni í álpappír 
Og smellið þeim svo í frystipoka og inn í frystinn. Takið svo út eftir hendinni.
Þetta er mikil búbót og gott að eiga þegar maður er þreyttur og vill hafa eitthvað fljótlegt
Hérna er ég svo búin að taka út eina fyrir mig og setja í grillið mitt
Skar þær svo niður og skellti ofan á þær auka af Doritos
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
May 03, 2026
Kjúklinganochos!
Einn af þessum réttum sem alltaf eru sígildir og góðir, Minnsta mál er að skipta út kjúkling fyrir hakk t.d. ef maður vill breyta til.
November 01, 2025
Butter Chicken!
Ég fékk smá glaðning frá ferðaskrifstofunni Fiðrildi.is sem hún Ásdís Guðmundsdóttir á og rekur, sem var skemmtileg uppskrifta bók frá Indlandi og vel valin krydd frá samstarfsaðila þeirra úti, henni Jenny D'Souza.
October 27, 2025
Kjúklingaleggir í pasta-rjómasósu!
Hérna er á ferðinni einn afar einfaldur og góður kjúklingaréttur þar sem ég nota kjúklingaleggi en hæglega er hægt að vera með aðra kjúklingabita í honum, allt eftir smekk. Örfá hráefni og hæglega hægt að skipta út sósunni t.d. fyrir aðra sambærilega sem þið eigið hugsanlega til í skúffunni ykkar.