March 09, 2020
Falin bleikja með grilluðum kúrbít
Þessi réttur hentar vel sem Ketóréttur en ég eldaði mér þetta fyrir einhverju síðan og var bara nokkuð ánægð með hann.
Bleikjubitar
Steiktir á pönnu á vægum hita með smá himalaya salti og agave sírópi
Kúrbítur, afhýddur og sneiddur langsum
Tómatar, skornir í bita
Parmesan ostur, sneiddur
Tómatarnir eru settir ofan á kúrbítinn og osturinn þar ofaná og bakað í ofni í ca 10-15 mín
Sósa:
Grískt jógúrt
1/2 gúrka, skorin í bita
Paprikukrydd heit reykt
Himalaya salt, smá
Pipar í kvörn, eftir smekk
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
April 22, 2020
March 21, 2020
March 09, 2020