Steikt lambalifur!

October 17, 2026

Steikt lambalifur!

Steikt lambalifur!
Lambalifur er eitt af því sem ég lærði að borða á unga aldri með móður minni þegar pabbi var í vinnuferðum þar sem hann var ekki fyrir innmat. Ég tel mig vera heppna að hafa lært það og ég reyndi að kenna sonum mínum það en gekk ekki eins vel en að mínu mati er þetta herramanns matur.

Þetta er einfalt í matreiðslu og ég tel að allir ættu að geta eldað sér ljúffenga lambalifur.


500-800 gr lambalifur, skorin í 2 cm sneiðar
Salt
Nýmalaður pipar
1-2 dl hveiti
Smjör/Smjörlíki eða olía

Kryddið lifur með salti og pipar og veltið upp úr hveiti. 
Ég krydda líka oft bara með Seson All. 
Steikið lifrina í Smjör/Smjörlíki eða olíu á vel heitri pönnu í 1 mín á hvorri hlið.
Bætið vatni á pönnuna svona rétt yfir miðju og sjóðið niður um helming.
Útbúið þá sósuna úr restinni af vökvanum, annað hvort frá grunni eða með því að setja 1 pakka af brúnni sósu, t.d. frá Toro.



Berið fram með kartöflum, sósu og sultu að eigin vali. Ég er oft með heimagerða rabarbarasultu en þarna var ég með heimagerða rifsberjasultu.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Heimilismatur

Steiktur blóðmör með eplum!
Steiktur blóðmör með eplum!

September 30, 2026

Steiktur blóðmör með eplum!
Flestum finnst hann bestur steiktur á pönnu með rófustöppu, aðrir bera fram með honum kartöflumús og hérna er sú þriðja komin með eplum. 

Halda áfram að lesa

Sláturtíðin!
Sláturtíðin!

September 22, 2026

Sláturtíðin!
Það eru margir sem eru duglegir við sláturgerð og hafa hugsanlega gert allsskonar úr innmat alla tíð. Sumir kannski að byrja og aðrir sem kannski hafa gert eitthvað af þessu einu sinni eða tvisvar og enn aðrir, aldrei!

Halda áfram að lesa

Plokkfiskur gratineraður!
Plokkfiskur gratineraður!

May 10, 2026

Plokkfiskur gratineraður!
Bæði er hægt að útbúa plokkfisk úr afgangs fiski en svo er líka minnsta mál að gera hann frá grunni. Minnsta mál er líka að tvöfalda uppskriftina ef fleirri eru í mat.

Halda áfram að lesa