Sláturtíðin!

September 22, 2026

Sláturtíðin!

Sláturtíðin, að taka slátur!
Það eru margir sem eru duglegir við sláturgerð og hafa hugsanlega gert allsskonar úr innmat alla tíð. Sumir kannski að byrja og aðrir sem kannski hafa gert eitthvað af þessu einu sinni eða tvisvar og enn aðrir, aldrei! Ég hef gert slátur einu sinni á ævinni með mömmu minni og ætla að láta það gott heita og njóta þess frekar að borða þetta og kaupa tilbúið einstaka sinnum.

Finna má líka uppskrift af rúllupylsu fyrir neðan.


En fyrir ykkur sem viljið prufa að vinna allsskonar góðgæti úr innmatnum þá eru hérna nokkrar uppskriftir sem ég fékk einhverntíman en man bara ekki hvaðan.

Dilkaslátur

Vambir: Skolið hreinsaðar vambir úr köldu vatni. Skafið og reytið eftir því sem með þarf en gætið þess að vambirnar rifni ekki. Sníðið keppi eins og jafna að stærð og mögulegt er. Saumið keppina með mjúku bómullargarni og gisnum sporum. Skiljið eftir vænt op. Geymið keppina í köldu (salt) vatni á köldum stað á meðan lifrahræra og blóðið er útbúið. Strjúkið vatnið vel af keppunum áður en látið er í þá. 
Geymsla: Vambir geymast saltaðar á köldum stað, til dæmis í kæliskáp eða hraðfrystar (við 18 stiga frost í frystikistu. Best er að sauma þær áður en þær eru frystar.

Mör: Hreinsið eitla úr mörnum. Brytjið mörinn smátt á stærð við litla sykurmola. Geymið mörinn í kæliskáp þangað til honum er blandað í hræruna. Mör geymist hraðfrystur.

Lifur er næringarrík fæða, auðug af vítamínum og steinefnum.

Hreinsun innmatar: 

Lifur: Takið himnur af nauta og kálfalifur, óþarfi að taka af svínalifur.
Hjörtu: Hreinsið burtu æðar, sinar, himnur og blóð.

Nýru: Sumir láta þau liggja í köldu saltvatni nokkrar klukkustundir fyrir notkun til að draga úr hinu sterka, sérkennilega bragði. Nýrun skorin eftir eftirlöngu í tvennt og himnur og sinar fjarlægðar. Í sumum uppskriftum að steiktum nýrum eru þau sett í sjóðandi vatn i ca 2.mínútur, kæld í sigti, þerruð og steikt svo.
Við meðferð og matreiðslu sláturvöru er afar mikilvægt að gæta fyllsta hreinlætis. Koma ósoðinni lyfrapylsu og blóðmör strax í frystikistuna, það er að segja því sem ekki er soðið strax. Best er að setja svo hálfrosið slátur út í sjóðandi vatn og salta í keppina (nota t.d. stóra nál) svo keppirnir springi ekki við suðu.


Blóðmör

1 lítri blóð
2 dl vatn
1 msk salt
300 gr haframjöl
400-500 gr rúgmjöl
500 gr mör ca
12-15 vambakeppir

1. Síið blóðið gegnm vírsigti og blandið salti og vatni í það. Hrærið þangað til saltið leysist upp. Hrærið haframjölinu út í blóðið og síðan rúgmjölinu. Hrærið það vel með hendi eða sleif. Hræran á að vera þynnri en lifrapylsuhræran. Hrærið smátt brytjuðum mör saman við. 

2. Takið keppina upp úr vatninu og strjúkið vætuna af. Hafið keppina rúmlega hálfa. Saumið jafnri hrærunni í keppunum og pikkið þá með stórri nál.

3. Látið keppina í sjóðandi saltvatn (1/2 - 1 msk af salti í hvern vatnslíter. Látið aðeins nokkra keppi í einu og bíðið eftir að suðan kemur upp aftur áður en fleirum er bætt við. Pikkið keppina með nál um leið og þeim skítur upp. Ýtið ofan á keppina með gataspaða. Hafið rifu á pottinum. Sjóðið með lokinu og gætið þess að suðan sé hæfilega jöfn. Suðutími er rúmar 3 klst.


Lifrapylsa

3-4 msk sykur
1 lifur (ca 450 gr)
100 gr nýru
1/2 l mjólk eða kjötsoð
1/2 msk salt
100 gr hafragrjón
100 gr hveiti
250 gr rúgmjöl
400 gr mör

Lifur og nýru eru hökkuð tvisvar. Salt og sykur sett í soðið eða mjólkina og blandað vel. Nú er lifra/nýrna hrærunni og mjölinu bætt sman við og hrært vel og að lokum er mörnum blandað saman við. Gætið þess að hafa mörinn vel saxaðan og jafnan.

Rúllupylsa

1 kg lambaslög
3 tsk salt
örl saltpétur
1 tsk allrahanda
1/2 tsk pipar
1/2 tsk rúllupylsukrydd
2 tsk fínt saxaður laukur

Þvoið slögin og úrbeinið þau. Blandið kryddinu saman, stráið því á slögin. Vefjið þétt og saumið saman með bómullargarni. Vefjið með saumagarninu tvöföldu. Rúllupylsuna má frysta strax eða setja í pækil.

Létt söltun

Þurrupækillá rúllupylsu
1/2 dl salt
1/2 dl sykur
1 tsk saltpétur

Blandið vel saman. Nuddið utan á rúllupylsuna og geymið hana í pæklinum í plastpoka. Lokið vel. Geymsit í ísskáp í ca 4 daga. 

Blautur pækill á rúllupylsu og kjöt
5 l vatn
500-750 gr salt
200 gr sykur
15 gr saltpétur (3 tsk)

Suðan er látið koma upp á hægum hita og það síðan kælt. Gætið þess að það fljóti yfir það sem á að salta á. Sjóðið rúllupylsuna í rúmlega 1 klukkustund eftir stærð. Sejið í létta pressu. Gott er að pressa rúllupylsuna (kjötpylsur yfirleitt) í plástinu svo að soðið renni ekki af þeim.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Heimilismatur

Plokkfiskur gratineraður!
Plokkfiskur gratineraður!

May 10, 2026

Plokkfiskur gratineraður!
Bæði er hægt að útbúa plokkfisk úr afgangs fiski en svo er líka minnsta mál að gera hann frá grunni. Minnsta mál er líka að tvöfalda uppskriftina ef fleirri eru í mat.

Halda áfram að lesa

Kálbögglar, gamaldags!
Kálbögglar, gamaldags!

March 21, 2026

Kálbögglar, gamaldags!
Hér á árum áður þá aldist ég upp við að fá kálböggla, ekki kjötfarsbollur og kál, heldur böggla. Svo týndist tíminn og allt í einu var ég farin að setja þetta skorið hvítkál og bollur saman í pott og sjóða. Það var því eitthvað við þetta sem rifjaði upp gamla tímann þegar ég pakkaði bollunum innan í hvítkálið og batt saman. Nostalgía!

Halda áfram að lesa

Sælkerakjötfars á brauði!
Sælkerakjötfars á brauði!

January 25, 2026

Sælkerakjötfars á brauði!
Margir kannast við kjötfars á brauð og aðrir muna eftir nafninu yfir það sem Rónasteik, ekki veit ég hvaðan það nafn er komið en þær eru margar nafna útgáfurnar á honum þessum.

Halda áfram að lesa