May 10, 2026
Plokkfiskur gratineraður!
Bæði er hægt að útbúa plokkfisk úr afgangs fiski en svo er líka minnsta mál að gera hann frá grunni. Minnsta mál er líka að tvöfalda uppskriftina ef fleirri eru í mat.
500 gr soðinn fiskur
500 gr soðnar kartöflur
100 gr smáttskorinn laukur
100 gr smjör
100 gr hveiti
5 dl mjólk
salt og pipar
Hitið laukinn í smjörinu þar til hann er orðinn glær, stráið hveitinu yfir og hrærið vel saman.
Bætið mjólkinni smátt og smátt saman við og látið sjóða.
Verið búin að skera kartöflurnar og fiskinn hæfilega smátt, og setjið út í sósuna og hitið.
Kryddið með salti og pipar.
Setjið í eldfast mót, stráið rifnum osti ofan á og setjið inn í ofn á 180°c í um það bil 15-20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.
Mér finnst mjög gaman að bera hann fram í svona minni formum sem passar vel fyrir einn en það má líka setja hann í stórt eldfast mót. Gott að hafa smá val.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
October 17, 2026
Steikt lambalifur!
Lambalifur er eitt af því sem ég lærði að borða á unga aldri með móður minni þegar pabbi var í vinnuferðum þar sem hann var ekki fyrir innmat. Ég tel mig vera heppna að hafa lært það og ég reyndi að kenna sonum mínum það en gekk ekki eins vel en að mínu mati er þetta herramanns matur.
September 30, 2026
Steiktur blóðmör með eplum!
Flestum finnst hann bestur steiktur á pönnu með rófustöppu, aðrir bera fram með honum kartöflumús og hérna er sú þriðja komin með eplum.
September 22, 2026
Sláturtíðin!
Það eru margir sem eru duglegir við sláturgerð og hafa hugsanlega gert allsskonar úr innmat alla tíð. Sumir kannski að byrja og aðrir sem kannski hafa gert eitthvað af þessu einu sinni eða tvisvar og enn aðrir, aldrei!