Saltkjöt og baunir !

March 25, 2020

Saltkjöt og baunir !

Saltkjöt og baunir !


Líklega borða Íslendingar aldrei meira af lambakjöti á einum degi en einmitt á sprengidaginn, því mjög margir fylgja þeirri gömlu hefð að bera fram baunasúpu og saltkjöt - og nóg af því, þar sem á sprengidag eiga allir að borða eins og þeir geta í sig látið.
Þjóðsagan segir að einhverju sinni hafi húsfreyja á bæ nokkrum sagt eftir matinn, þegar allir voru búnir að gera sér gott af sprengidagskjötinu: ,,Södd er ég og saddir eru allir mínir." Þá sagði tengdadóttir hennar: ,,Springi sá sem fyllstur er!" og hélt að það yrði tengdamóðirin, en raunin varð sú að hún sprakk sjálf, því að hún hafði borðað mest af öllum. Það er kannski óþarfi að borða þar til maður springur - eða óska þess að aðrir springi - en saltkjöt og baunir er góður matur sem flestir geta borðað vel af.

Salktjöt og baunir
Flestir halda að það þurfi að leggja baunirnar í bleyti, jafnvel sólarhring áður en sjóða á súpuna, en það er óþarfi. Það er hægt að setja þær beint í pottinn.
250 g gular baunir 
2 l vatn 
1 laukur, saxaður 
2 tsk timjan, þurrkað 
1,2 kg saltkjöt 
500 g gulrófur, afhýddar og skornar í bita 
500 g kartöflur, afhýddar og skornar í bita 
250 g gulrætur, skafnar og skornar í bita 
nýmalaður pipar, ef vill

Baunirnar settar í pott með vatni, timjan og lauk og hitað að suðu. Látið malla undir loki í um 45 mínútur. Þá eru einn eða tveir kjötbitar settir út í en hinir soðnir sér í potti. Látið sjóða áfram í um hálftíma. Þegar líður á suðutímann er rétt að líta á baunirnar öðru hverju, hræra og athuga hvort bæta þarf við vatni. Grænmetið sett út í og soðið í 20-30 mínútur í viðbót, eða þar til allt er meyrt. Smakkað og e.t.v. kryddað með pipar og salti.

Einnig má sjóða allt kjötið sér en þá þarf að salta baunirnar, eða sjóða það allt í súpunni en þá gæti hún orðið of sölt. Líka má sjóða kjötið allt sér en sjóða þess í stað vænan bita af beikoni eða söltuðu svínafleski í súpunni til bragðbætis.
Í kaþólskum sið var og er víða erlendis haldin mikil kjöthátíð kvöldið áður en langafasta hófst. Þetta var líka gert hér og sá siður hélst áfram þrátt fyrir siðbreytingu. Heitið sprengikvöld, sem er eldra en sprengidagur, kemur þó ekki fyrir fyrr en á 18. öld. Þá átti fólk að borða þar til það stóð á blístri og var að því komið að springa. Lengi hefur verið hefð að borða saltkjöt og baunasúpu þennan dag og það gera líklega flestir enn þótt sumir hafi breytt eitthvað til og eldi e.t.v. svolítið heilsusamlegri útgáfur af réttinum. En þótt feitt saltkjöt sé ekkert sérstakt hollustufæði er ekkert nema gott um baunasúpuna að segja og þá ætti að vera óhætt að fá sér dálítið af kjötinu með – það er þá alltaf hægt að skera fituna frá.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni





Einnig í Heimilismatur

Kjötbollur í Bolognese sósu
Kjötbollur í Bolognese sósu

January 17, 2024

Kjötbollur í Bolognese sósu
Hérna er hægt að nota bæði hakk eða bollur í réttinn og ég ákvað að nota að þessu sinni hakkbollur sem ég átti til tilbúnar og setja út í sósuna ásamt spagettí ofl. Virkilega góður réttur borinn fram með hvítlauksbrauði.

Halda áfram að lesa

Nautagúllas Orientalsk
Nautagúllas Orientalsk

December 28, 2023

Nautagúllas Orientalsk
Ég elska að elda nautagúllas og ég elska líka að prufa eitthvað nýtt og nýjar sósur saman við. Hérna nota ég pakka af Orientalsk Gryte frá Toro. 

Halda áfram að lesa

Bollur í chili rjómasósu
Bollur í chili rjómasósu

December 12, 2023

Nautahakksbollur í chili rjómasósu
Þessa uppskrift eða svipaða sá ég á snappi hjá vini sonar míns og langaði svo til að gera og prufa sem ég og gerði.

Halda áfram að lesa