Sælkerakjötfars á brauði!

January 25, 2026

Sælkerakjötfars á brauði!

Sælkerakjötfars á brauði!
Margir kannast við kjötfars á brauð og aðrir muna eftir nafninu yfir það sem Rónasteik, ekki veit ég hvaðan það nafn er komið en þær eru margar nafna útgáfurnar á honum þessum.

Hérna skellti ég honum í sælkerabúning, svona eins og hægt er!

1 rúlla af kjötfarsi, ég persónulega á alltaf til 1 stk af Kjarnafæði rúllunum frosnum
1 samlokubrauð, ég nota ýmist fínt eða gróft, meira samt þarna í þessu fína
1 krukka af Sinnepi Svövu, þær eru 6 bragðtegundirnar sem í boði eru, sjá hér
1-2 egg á mann

Mín tillaga fyrir fámennt heimili, nú eða einsetu er að steikja allt og frysta svo tvær og tvær saman og taka út síðar, svona þegar maður er of þreyttur til að elda.




Byrjið á að smyrja sinnepinu á brauðsneiðarnar

Allt við hendina

Steikið svo á pönnu og smyrjið á hina hliðina, ég nota smjörlíki á pönnuna þarna



Gott er að geyma það sem búið er að steikja í upphituðum ofni á smá hita á meðan allt er klárað.

Steikið síðan egg og kryddið þau með salt og pipar eða eftir ykkar smekk

Nú þar sem ég var nú bara ein í mat þetta kvöld, þá var bara eitt egg ;)

Og svo er alveg nauðsynlegt að hafa sinnepið við hendina til að bæta á ef maður vill. 
Restina setti ég svo í poka, tvær og tvær saman, sem er akkúrat passlegt í máltíð fyrir mig.
Það er nauðsynlegt að setja í frystipoka, ekki venjulega plastpoka svo það frostþurrkni ekki.


Nammi namm...


Hérna hef ég svo tekið út tvær sneiðar, steikt egg og borið fram með fersku salati og tómatsósu, svona smá tvist á þetta.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Heimilismatur

Steiktur blóðmör með eplum!
Steiktur blóðmör með eplum!

September 30, 2026

Steiktur blóðmör með eplum!
Flestum finnst hann bestur steiktur á pönnu með rófustöppu, aðrir bera fram með honum kartöflumús og hérna er sú þriðja komin með eplum. 

Halda áfram að lesa

Sláturtíðin!
Sláturtíðin!

September 22, 2026

Sláturtíðin!
Það eru margir sem eru duglegir við sláturgerð og hafa hugsanlega gert allsskonar úr innmat alla tíð. Sumir kannski að byrja og aðrir sem kannski hafa gert eitthvað af þessu einu sinni eða tvisvar og enn aðrir, aldrei!

Halda áfram að lesa

Plokkfiskur gratineraður!
Plokkfiskur gratineraður!

May 10, 2026

Plokkfiskur gratineraður!
Bæði er hægt að útbúa plokkfisk úr afgangs fiski en svo er líka minnsta mál að gera hann frá grunni. Minnsta mál er líka að tvöfalda uppskriftina ef fleirri eru í mat.

Halda áfram að lesa