Kálbögglar, gamaldags!

March 21, 2026

Kálbögglar, gamaldags!

Kálbögglar, gamaldags!
Hér á árum áður þá aldist ég upp við að fá kálböggla, ekki kjötfarsbollur og kál, heldur böggla. Svo týndist tíminn og allt í einu var ég farin að setja þetta skorið hvítkál og bollur saman í pott og sjóða. Það var því eitthvað við þetta sem rifjaði upp gamla tímann þegar ég pakkaði bollunum innan í hvítkálið og batt saman. Nostalgía!


1 rúlla af kjötfarsi eða pakki (ath að ég notaði helminginn af pakkanum í soðnar og hinn helminginn í steiktar í raspi, sjá neðar)

Hvítkál
Smjör
Kartöflur

Vefjið kjötfarsbollu innan í hvítkál og bindið saman með garni eða hverju sem ykkur dettur í hug. Hitið vatnið og látið suðuna koma upp og látið þá bögglana út í.

Látið malla í um 15-20 mínútur. Bræðið smjör og berið fram með bollunum og kartöflunum. 

Kartöflur, meðalstórar. Látið suðuna koma upp og látið malla í 18-20 mínútur. Ég salta ávallt í pottinn. 



Heimilislegur matur

Nú þar sem ég skipti rúllunni í tvennt þá undirbjó ég matinn fyrir daginn eftir og ég settir restina í rasp og steikti á pönnu daginn eftir. Steiktar kjötbollur í brauðraspi, bornar fram með brúnni rjómasósu, kartöflum og rifsberjasultu.


Veltið restinni af kjötfarsinu upp úr brauðraspi og kryddið eftir smekk, ég notaði Seson All frá By Artos 

Steikið þær á báðum hliðum, lækkið hitann niður og látið svo malla í um 15-20 mínútur 

Með þessu var ég með soðnar kartöflur og gulrætur, brúna sósu og rifsberjasultu

Brúna rjómasósan:
1 peli af rjóma eða matreiðslurjóma
1 tening af kjötkrafti
Sveppi að eigin vali eða sleppið
Þykkið sósuna svo lítilega með Maizmjöli og bætið út hana matarlit ef þið viljið hafa hana dekkri en hún er, ég geri það einstaka sinnum.


Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Heimilismatur

Steikt lambalifur!
Steikt lambalifur!

October 17, 2026

Steikt lambalifur!
Lambalifur er eitt af því sem ég lærði að borða á unga aldri með móður minni þegar pabbi var í vinnuferðum þar sem hann var ekki fyrir innmat. Ég tel mig vera heppna að hafa lært það og ég reyndi að kenna sonum mínum það en gekk ekki eins vel en að mínu mati er þetta herramanns matur.

Halda áfram að lesa

Steiktur blóðmör með eplum!
Steiktur blóðmör með eplum!

September 30, 2026

Steiktur blóðmör með eplum!
Flestum finnst hann bestur steiktur á pönnu með rófustöppu, aðrir bera fram með honum kartöflumús og hérna er sú þriðja komin með eplum. 

Halda áfram að lesa

Sláturtíðin!
Sláturtíðin!

September 22, 2026

Sláturtíðin!
Það eru margir sem eru duglegir við sláturgerð og hafa hugsanlega gert allsskonar úr innmat alla tíð. Sumir kannski að byrja og aðrir sem kannski hafa gert eitthvað af þessu einu sinni eða tvisvar og enn aðrir, aldrei!

Halda áfram að lesa