Grilluð kindabjúgu

November 02, 2022

Grilluð kindabjúgu

Grilluð kindabjúgu
Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifin af bjúgum en ákvað að gefa þessu nú séns svona á fullorðins árum og mundi þá eftir að þegar ég var að passa á yngri árunum þá hafði húsbóndinn á heimilinu alltaf eitthvað tilbúið fyrir mig að elda fyrir mig og guttann sem ég var að passa og einn daginn voru bjúgu og það sem mér þótti áhugaverðast var að hann hafði vafið þeim inn í álpappír og ég átti að grilla þau í ofninu og viti menn, þau voru svo mikið betri þannig, svo ég lagði í þetta núna aftur og já ef þetta sleppur ekki bara. 


Skerið bjúgun í tvennt og kryddið þau með salt og pipar, mín hugmynd.
Setjið inn í ofn eða í Air Fryer ef þið eigið hann til. ég setti í hann á um 8-10 mínútur. 

Ég bjó til ekta kartöflu mús með bjúgunum. Ca 8-10 kartöflur, soðnar. Skrælaðar og stappaðar svo með smá smjöri/smjörlíki, mjólk og sykur.

Og karrísósu sem ég bakaði upp með smjörlíki og mjólk úr pakka frá Toró

Örugglega gott að prufa líka brúna sósu, geri það næst.

Deilið með gleði

 

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni






Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Heimilismatur

Steiktur blóðmör með eplum!
Steiktur blóðmör með eplum!

September 30, 2026

Steiktur blóðmör með eplum!
Flestum finnst hann bestur steiktur á pönnu með rófustöppu, aðrir bera fram með honum kartöflumús og hérna er sú þriðja komin með eplum. 

Halda áfram að lesa

Sláturtíðin!
Sláturtíðin!

September 22, 2026

Sláturtíðin!
Það eru margir sem eru duglegir við sláturgerð og hafa hugsanlega gert allsskonar úr innmat alla tíð. Sumir kannski að byrja og aðrir sem kannski hafa gert eitthvað af þessu einu sinni eða tvisvar og enn aðrir, aldrei!

Halda áfram að lesa

Plokkfiskur gratineraður!
Plokkfiskur gratineraður!

May 10, 2026

Plokkfiskur gratineraður!
Bæði er hægt að útbúa plokkfisk úr afgangs fiski en svo er líka minnsta mál að gera hann frá grunni. Minnsta mál er líka að tvöfalda uppskriftina ef fleirri eru í mat.

Halda áfram að lesa