March 01, 2025
Papriku pizzur!
Já það er hægt að gera sér hollar og góðar pizzur og nota bara paprikur fyrir botn og ég skellti mér í eina svona veislu og verð að segja að fyrir mitt leyti þá voru þær æði! Ég notaði venjulegt pepperoni í þetta sinn en næst ætla ég að prufa með sterku litlu pepperoni.
5 smá paprikur, skornar í tvennt
1/2 bolli barbeque sósa eða pizzasósa
1/2-1 bolli mozzarella, rifinn
Lítil pepperoní sterk eða venjulegt pepperoni að ykkar vali
Fyllið paprikurnar með sósu, osti og pepperoni!
Skelltu þeim inn í 180 gráðu heitan ofn í 12 til 15 mínútur! Eða í 2-3 mínútur í Air fryer

Skerið paprikurnar í 4 hluta og setjið barbeque sósu í botninn
Fyllið hana svo með osti
Bætið pepperoni ofan á
Og bætið við slatta af osti ofan á og setjið inn í ofn á 180°c þar til osturinn er bráðnaður, ca 10 mínútur. Líka hægt að setja í Air fryer í ca.2-3 mínútur
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
April 26, 2026
Grænmetislasagna
Bjó til þetta dásamlega ljúffenga lasagna sem er ein bragðlauka blanda af æðislegum kryddum frá Mabrúka. Ég naut þess virkilega að bæði útbúa það og eins að snæða með góðu brauði á kantinum.
March 15, 2026
Blómkáls- og kjúklingabaunakarrý með kókos.
Kröftugt blómkál og kjúklingabaunir í rjómalöguðum kókoskarrýsósu, réttur sem kom mér verulega á óvart, virkilega bragðgóður og léttur í maga.
November 23, 2025
Grænkálssnakk!
Ég var í boði fyrir stuttu síðan þar sem boðið var upp á Grænkálssnakk og ég var að smakka í mitt fyrsta sinn og mér fannst það líka svona gott að þegar ég fór á markaðinn hjá Slow Food í Flórunni í Grasagarðinum og sá þetta girnilega glænýja grænkál.