September 03, 2026
Grænmetislagsagna!
Enn eitt ljúffenga lasagnað og hérna er á ferðinni grænmetis með spínati, grænkáli, sveppum, kotasælu og fleirru sem gerir þetta einstaklega gott.
10-12 lasagnablöð
400 gr spínat
250 gr grænkál
500 gr sveppir
400 gr kotasæla
3 dl sýrður rjómi 18%
1 msk timían, gott að hafa það ferskt
1 líter tómatsósa, pastasósa
Rifinn ostur
50 gr parmesanostur
Skolið grænmetið vel, þerrið það og skerið stærstu stilkana af því sem við á. Skerið kálið gróft niður. Skerið niður sveppina og steikið þá á pönnu upp úr smá smjöri. Saltið þá lítileg og piprið. Blandið saman kotasælunni, sýrða rjómanum og smátt skornum kryddjurtunum, bragðbætið lítilega með salt og pipar og fyrir þá sem vilja hafa það sterkara er gott að bæta smávegis við af chili flögum.
Smyrjið eldfast mót með olíu og dreifið þunnu lagi af tómat/salsa sósunni í þunnu lagi yfir og leggjið svo lasagna plöturnar ofan á. Setjið blönduna með kotasælunni þar ofan á, þar ofan á spínat og grænkál jafnt yfir, helminginn af sveppunum og svo aftur sömu röð þar til ca 3-4 lög eru komin og í lokin er sett tómatsósan og mikið af rifnum osti. Setjið formið í 180°c heitan ofn og bakið í ca.40-45 mínútur þar til osturinn er orðin gullinbrúnn.
Berið fram með góðu brauði og parmesan osti til að strá yfir í lokin.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
July 27, 2026
Kálréttur í ofni!
Keypti mér þetta kál og Gulrótar chutney frá Breiðagerði Garðyrkjustöð á Slow Food markaði og skellti í þennan ofnrétt., Einfaldur og góður.
April 26, 2026
Grænmetislasagna
Bjó til þetta dásamlega ljúffenga lasagna sem er ein bragðlauka blanda af æðislegum kryddum frá Mabrúka. Ég naut þess virkilega að bæði útbúa það og eins að snæða með góðu brauði á kantinum.
March 15, 2026
Blómkáls- og kjúklingabaunakarrý með kókos.
Kröftugt blómkál og kjúklingabaunir í rjómalöguðum kókoskarrýsósu, réttur sem kom mér verulega á óvart, virkilega bragðgóður og léttur í maga.