April 26, 2026
Grænmetislasagna
Bjó til þetta dásamlega ljúffenga lasagna sem er ein bragðlauka blanda af æðislegum kryddum frá Mabrúka. Ég naut þess virkilega að bæði útbúa það og eins að snæða með góðu brauði á kantinum. Uppskriftin hentar vel í 2-3 máltíðir fyrir 1-3 en ég setti í tvö eldföst mót og inn í frystinn sem gott verður að taka út síðar og gæða sér á.
Hagsýna húsmóðirin!
1 rauðlaukur
250g sveppir
1/2 blómkálshaus
1 krukka pastasósa (400g)
1 dós tómatar, hakkaðir
1 msk. Harissa frá Mabrúka
2 msk. Grænmetisblanda frá Mabrúka
Salt og pipar (t.d. frá Mabrúka)
Nokkrar lasagna plötur, ég lagði þær í bleyti í smá stund til að flýta fyrir
500 g kotasæla
200 g spínat
200g mozarella rifinn
Ólífuolía



Hitið ofninn í 200°C
Látið malla í ca. 10 mínútur
Setjið í eldfast mót 2-3 lög af
(Endið með osti)







Vegan ostur vinstra megin og mosarella ostur hægra megin
Bakið inn í ofni í ca. 40 mínútur eða þangað til osturinn er farinn að brúnast vel og lasagna plöturnar eru mjúkar.




Uppskrift frá Safa hjá Mabrúka
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
March 15, 2026
Blómkáls- og kjúklingabaunakarrý með kókos.
Kröftugt blómkál og kjúklingabaunir í rjómalöguðum kókoskarrýsósu, réttur sem kom mér verulega á óvart, virkilega bragðgóður og léttur í maga.
November 23, 2025
Grænkálssnakk!
Ég var í boði fyrir stuttu síðan þar sem boðið var upp á Grænkálssnakk og ég var að smakka í mitt fyrsta sinn og mér fannst það líka svona gott að þegar ég fór á markaðinn hjá Slow Food í Flórunni í Grasagarðinum og sá þetta girnilega glænýja grænkál.
March 01, 2025
Papriku pizzur!
Já það er hægt að gera sér hollar og góðar pizzur og nota bara paprikur fyrir botn og ég skellti mér í eina svona veislu og verð að segja að fyrir mitt leyti þá voru þær æði!