July 27, 2026
Kálréttur í ofni!
Keypti mér þetta kál og Gulrótar chutney frá Breiðagerði Garðyrkjustöð á Slow Food markaði og skellti í þennan ofnrétt., Einfaldur og góður.
Hérna er hráefnið sem ég notaði í réttinn.
Kál
Gulrótar Chutney
Grænkáls salt
Olíu
Skerið kálið í tvennt
Spreyjið kálið með olíu
Kryddið það hæfilega með Grænkáls saltinu
Setjið inn í ofn og gott er að setja yfir hann álpappír svo hann þorni ekki of mikið og taka svo af í lokin. 180°c í um 60.mínútur
Rétt áður en rétturinn er tilbúinn, takið hann þá út og berið á hann Gulrótar chutney og setjið inn aðeins aftur til að hita það upp.
Berið fram eitt og sér eða með góðu brauði.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
April 26, 2026
Grænmetislasagna
Bjó til þetta dásamlega ljúffenga lasagna sem er ein bragðlauka blanda af æðislegum kryddum frá Mabrúka. Ég naut þess virkilega að bæði útbúa það og eins að snæða með góðu brauði á kantinum.
March 15, 2026
Blómkáls- og kjúklingabaunakarrý með kókos.
Kröftugt blómkál og kjúklingabaunir í rjómalöguðum kókoskarrýsósu, réttur sem kom mér verulega á óvart, virkilega bragðgóður og léttur í maga.
November 23, 2025
Grænkálssnakk!
Ég var í boði fyrir stuttu síðan þar sem boðið var upp á Grænkálssnakk og ég var að smakka í mitt fyrsta sinn og mér fannst það líka svona gott að þegar ég fór á markaðinn hjá Slow Food í Flórunni í Grasagarðinum og sá þetta girnilega glænýja grænkál.